staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Herra forseti. Þegar við lukum þingstörfum fyrir áramót voru síðustu umræðurnar í þessum sal um stöðuna eftir það óveður sem gekk yfir landið í desember. Þegar við komum saman aftur til þings vænti ég þess að ofarlega séu mörgum í huga þeir viðburðir sem urðu vestur á fjörðum þegar stór snjóflóð féllu, annars vegar á Flateyri, og raunar tvö flóð, og hins vegar stórt flóð sem féll í Súgandafirði og olli flóðbylgju á Suðureyri. Náttúruöflin er okkur áfram ofarlega í huga og það er mikilvægt að við ræðum þau hér í þessum sal, bæði í dag og á komandi vikum.
Ég ætla þó að byrja annars staðar. Ég ætla að byrja aðeins á stöðu efnahagsmála þegar við hefjum þetta nýja ár. Það liggur fyrir að eftir fall WOW air á síðasta ári og þær afleiðingar sem það hafði, til að mynda í ferðaþjónustu, hefur kólnað í hagkerfinu. Lífskjarasamningar sem náðust í vor munu hins vegar hjálpa okkur til þess að ná því sem oft hefur verið kallað mjúk lending í efnahagsmálum. Það er búist við því að samdráttur á vergri landsframleiðslu í hagkerfinu árið 2019 verði um 0,2%. Afleiðingar þessarar kólnunar birtast einna helst á vinnumarkaði í verulegum fjölda atvinnulausra. Annars staðar sjáum við hins vegar stöðugleika. Verðbólga er nærri verðbólgumarkmiði og sem betur fer bendir flest til þess að þessi samdráttur verði ekki langvarandi. Við sjáum sömuleiðis að stjórnvöld gripu inn í í kringum lífskjarasamningana með aðgerðum sem hafa skipt máli og þá vísa ég sérstaklega til nýlegra breytinga á skatt- og bótakerfi þar sem skattar voru lækkaðir en skattalækkun var líka útfærð með þriggja þrepa skattkerfi sem tryggir að hinir tekjulægstu njóti best. Hið sama má segja um hækkun barnabóta sem mun skipta tekjulægri hópa verulegu máli.
Við sjáum sömuleiðis áhugaverðar tölur í nýlegri uppfærslu á Tekjusögunni, gagnagrunni stjórnvalda sem við opnuðum eftir töluverða undirbúningsvinnu fyrir u.þ.b. ári. Nú hefur sá vefur verið uppfærður á árinu sem er liðið og upplýsingar ná aftur til ársins 2018. Þar kemur ýmislegt í ljós en til stendur síðan að bæta frekari breytingum við þennan vef þar sem verði gerð grein fyrir upplýsingum m.a. um eignir, skuldir og menntun. Það sem við sjáum á árinu 2018 er að ráðstöfunartekjur án fjármagnstekna eru að aukast. Ráðstöfunartekjur án fjármagnstekna hafa aldrei verið hærri en á árinu 2018 hjá eldri borgurum, hjónum og sambúðarfólki, einstæðum foreldrum og einstæðum konum. Ráðstöfunartekjur einstæðra karla voru hins vegar hærri fyrir hrun en árið 2018. Bætur frá ríki og sveitarfélögum til einstæðra mæðra hafa ekki áður verið hærri og ráðstöfunartekjur að teknu tilliti til fjármagnstekna aukast hlutfallslega mest hjá neðstu tekjutíundinni en minnka hjá þeirri efstu. Þannig að það eru jákvæð teikn á lofti þegar við skoðum stöðuna fyrir árið 2018. Þegar við skoðum sömuleiðis aðgerðir stjórnvalda í kringum lífskjarasamninga 2019 eru þær til þess fallnar að jafna kjör og tryggja áframhaldandi stöðugleika í hagstjórn.
Það breytir því ekki að krefjandi áskoranir blasa við og þar horfum við fram á gerð fjármálaáætlunar á tíma þar sem full ástæða er til að efla opinbera fjárfestingu, ekki bara vegna kólnunar í hagkerfi heldur líka vegna augljósrar uppsafnaðrar þarfar víða í okkar innviðum og okkar kerfi. Þessi ríkisstjórn hefur raunar aukið opinberar fjárfestingar um 45% frá því að hún tók við og kynni einhverjum að þykja það há tala. Það breytir því ekki að við erum enn rétt að nálgast sögulegt meðaltal vegna stöðunnar áður en núverandi stjórn tók við. Sömuleiðis liggur fyrir að þörfin er mikil og ég mun koma að því hér á eftir í tengslum við hin óblíðu náttúruöfl og hvernig þau hafa leikið okkur á undanförnum mánuðum.
En hver eru stóru málin? Jú, á fyrstu vikum ársins eru það heilbrigðismálin sem augljóslega hafa verið mest í hinni pólitísku umræðu. Mér finnst rétt að ræða þau stuttlega í tengslum við annars vegar aukin útgjöld því mikið er rætt um að aukin útgjöld og aukna fjárfestingu þurfi í heilbrigðiskerfinu. Á þessu ári verða framlög til heilbrigðiskerfisins 245 milljarðar en árið 2017 voru þau 206 milljarðar á föstu verðlagi. Þetta er fyrir utan fjárfestingu þannig að hér erum við að tala um rekstur heilbrigðiskerfisins. Þar hefur mest aukning orðið til heilsugæslunnar. Ég trúi því, ef marka má til að mynda hvernig atkvæði féllu um nýja heilbrigðisstefnu, að það sé samhljómur um það á Alþingi að við viljum styðja sérstaklega við heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað og við teljum eðlilegt að styrkja hana sérstaklega. Aukningin til Landspítalans hefur verið 12%, það er fyrir utan fjárfestingar, fyrir utan launa- og verðlagsbætur, svo að við séum með þessar staðreyndir á hreinu. Í krónum eru þetta 5,6 milljarðar en á sama tíma hefur aukning til heilbrigðisstofnana úti um land verið að meðaltali um 10%. Það skiptir nefnilega máli að horfa á kerfið í heild sinni og það skiptir máli þegar við ræðum um stöðuna á Landspítalanum að við ræðum líka um hjúkrunarrými, heilsugæslu og heilbrigðisstofnanir úti um land og hvernig kerfið okkar virkar saman sem heild. Unnin hefur verið heilbrigðisstefna, m.a. til að ná fram þessari heildarsýn. Þar hefur verið tekið mark á og hlustað eftir þeim skýrslum og úttektum sem hafa komið á undanförnum árum og ég nefni til að mynda McKinsey-skýrsluna sem kom fram fyrir nokkrum árum.
Að sjálfsögðu erum við ekki þar með komin á þann stað að ekki þurfi að gera betur og ekki þurfi að gera meira. Við getum rætt um hjúkrunar- og dvalarrými þar sem við höfum séð fjárheimildir í rekstur þeirra aukast um 23% en fjárheimildir í fjárfestingu og framkvæmdir hafa aukist um 62%, 1,7 milljarða. Þar af getum við til að mynda nefnt höfuðborgarsvæðið sem dæmi þar sem lengi hefur verið mikil þörf á auknum fjölda hjúkrunarrýma þar sem hjúkrunarrýmum fjölgaði árið 2019 um 78. En við þurfum að horfa á heildina. Við þurfum líka að nálgast þetta út frá þeirri stöðu að við munum eldast, þótt við séum yngri en aðrar Norðurlandaþjóðir og eignumst enn þá fleiri börn. Við þurfum að horfa til lengri tíma og það er verið að gera með heilbrigðisstefnu. Á sama tíma þarf að bregðast við stöðunni núna og þess vegna hefur heilbrigðisráðherra nú skipað átakshóp um bráðamóttöku Landspítalans því það er mikilvægt að bregðast við því ástandi sem þar er. Þar munum við væntanlega sjá tillögur á næstunni því að þessum hópi er ætlað að vinna hratt.
Að lokum langar mig að ræða aðeins stöðu mála, fyrst eftir óveðrið í desember. Átakshópur sem ég skipaði strax í kjölfar þess mun skila af sér tillögum, eins og boðað var, í lok febrúarmánaðar. Ég hef þá trú, af því að ég veit að sá hópur hefur setið við síðan hann var settur á laggirnar, að þar muni koma fram góðar tillögur. Þessi hópur mun funda með nefndum Alþingis eins og kallað var eftir í umræðum á þingi þar sem óskað var sérstaklega eftir samráði við þingið og ég hef beðið hópinn um að funda með viðeigandi nefndum Alþingis áður en þessar tillögur verða kynntar til þess að treysta það að við fáum öll sjónarmið þingmanna inn í þá umræðu. En ég veit sömuleiðis að sveitarstjórnarmenn hafa átt fundi með hópnum sem og sérfræðingar um land allt.
Snjóflóðin sem féllu núna í janúar minna okkur síðan enn og aftur á náttúruöflin. Þar hefur mikið verið rætt um ofanflóðasjóð á undanförnum dögum. Það var árið 1996, eftir flóðin mannskæðu 1995 á Flateyri og Súðavík, að samþykkt var áætlun um framkvæmdir vegna ofanflóðavarna í þeim sveitarfélögum sem búa við ofanflóðahættu. Þar var eins og komið hefur fram í fjölmiðlum miðað við að ljúka framkvæmdum fyrir árið 2010. Það liggur sömuleiðis fyrir þegar fjárveitingar til þessara mála eru skoðaðar að á árunum 2004–2007 var hægt á fjárveitingum til þessara framkvæmda til að sporna við þenslu í samfélaginu, m.a. vegna virkjana og stóriðjuframkvæmda á þeim tíma. Síðan var gefið aftur í þessar fjárveitingar en dregið úr þeim aftur strax eftir hrun. Síðan var gefið aftur í og síðan aftur dregið úr. Við sjáum bara á línuriti þegar við skoðum fjárveitingar til ofanflóðasjóðs að þar hefur gengið á ýmsu og þær fjárveitingar hafa tekið mið af þróun efnahagsmála á hverjum tíma. Það hafa ansi margar ríkisstjórnir komið að því máli. Þess vegna segi ég: Í þessum málum þurfum við að horfa fram á veg. Við sjáum fram á u.þ.b. 20 milljarða framkvæmdir sem þarf að ráðast í til að að þessum málum sé búið með fullnægjandi hætti. Ég hef trú á því að við séum öll sammála um það í þessum sal að við getum gert það mun hraðar en gert hefur verið hingað til. Ef við höldum áfram á sama hraða er það ekki fyrr en um miðja öld að framkvæmdum lýkur. Þannig að nú liggur fyrir að fjármálaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra sem fer með málefni ofanflóðasjóðs munu leggja til nýja áætlun um hvernig við getum flýtt þessum framkvæmdum — því að við sjáum að þær skipta máli. Það er mikilvægt að við getum tryggt öryggi landsmanna allra, sama hvar þeir búa.
Það er krefjandi verkefni að búa á Íslandi. Það er líka stórkostlegt verkefni en atburðir liðinna vikna hafa svo sannarlega sýnt okkur að við þurfum að gera betur þegar kemur að hinum áþreifanlegu innviðum sem við eigum til að bregðast við náttúruvá. Sömuleiðis vil ég greina frá því hér að lokum að þetta hefur vakið okkur öll til umhugsunar um fyrirkomulag almannavarna og það er því sérstakt ánægjuefni að dómsmálaráðherra mun nýta næstu mánuði til að fara sérstaklega yfir þau mál og settur ríkislögreglustjóri er nú á ferð um landið til að eiga samtöl við fólk í landinu um það hvernig við getum treyst almannavarnir okkar betur.