150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[16:24]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta ræðu. Ráðherra nefndi að stóra málið væri heilbrigðismálin og það er hægt að taka undir það með ráðherranum. Heilbrigðismálin eru vitanlega stór og mikilvægur málaflokkur. Mig langar því að spyrja ráðherrann, í ljósi þeirrar talnarunu sem kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra, hvort ekki sé ráð að skoða stjórnun Landspítalans, velta því fyrir sér hvort ekki sé rétt að setja sérstaka stjórn yfir spítalann og horfa jafnvel til þess að fara ofan í rekstur á þessu stærsta sjúkrahúsi í ljósi allra þeirra fjármuna sem þangað renna.

Síðan langar mig að spyrja ráðherrann út í það hvort ekki sé tími til kominn að fara í jákvæðar aðgerðir út af atvinnuleysinu. Forsætisráðherra nefndi réttilega að farið hefði verið í miklar opinberar fjárfestingar, en hvað hyggst ráðherrann gera til að hjálpa atvinnulífinu til að fara í auknar fjárfestingar? Hvað á atvinnulífið, einkageirinn, að gera til að aðstoða okkur við að minnka atvinnuleysið og komast áfram?