staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Forseti. Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu kemur fram, með leyfi forseta:
„Yfir 70% þjóðarinnar telur spillingu í stjórnkerfi og atvinnulífi vera mikla eða frekar mikla. Spillingarupplifun gefur sterkar vísbendingar um traust á stjórnmálum og stjórnsýslu. Því hefur verið haldið fram að upplifun Íslendinga á spillingu sé „ýkt“ og að spillingarásakanir í samfélagsumræðu geti valdið því að almenningur trúi því að spilling sé meiri en raunin er. Varasamt er þó að draga slíkar ályktanir. Það eru hreinar getgátur að hörð þjóðfélagsumræða ýki spillingarupplifun og mikilvægt er að hafa í huga að „upplifun einstaklinga á spillingu, hvort sem hún er réttmæt eða ekki, grefur undan lýðræðinu og helstu stofnunum samfélagsins“.“
Forseti. Það er tvennt í þessu. Í fyrsta lagi sú alvarlega staða að það sé útbreitt viðhorf að spilling ríki í stjórnkerfinu og að það grafi undan lýðræðinu, hvort sem það viðhorf sé réttmætt eða ekki. Og í öðru lagi: Það að benda á eða tala um vandamálið er ekki vandamálið. Að skjóta sendiboðann er ekki til þess fallið að auka traust almennings á stjórnmálum. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra í ljósi þess að traust til Alþingis fer dvínandi hverjar hún telji afleiðingar af þessu viðvarandi vantrausti verða fyrir samfélagið. Hverjar verða afleiðingarnar?