staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Forseti. Ég þakka svörin. Ég veit að ein mínúta er ekki mikill tími en þetta er gríðarlega mikilvægt málefni og var ekkert tekið á því í ræðu forsætisráðherra. Í febrúar 2018 mældist traust til Alþingis 29%. Í febrúar 2019 mældist traust til Alþingis 18%. Hver ætli niðurstaðan verði eftir nokkrar vikur? Þetta dvínandi traust til Alþingis skapar svigrúm fyrir hægri popúlisma sem nærist á því að þykjast vera réttmætara vald en það sem er lýðræðislega kjörið. Þetta hefur verið raunin í mörgum nágrannalöndunum nú þegar og er ekkert sem segir okkur að það ætti að vera eitthvað öðruvísi hér. Aðgerðir eða aðgerðaleysi stjórnvalda og ráðherra hingað til minnka traust en efla það ekki. Afleiðingarnar sem það getur haft fyrir samfélagið eru ógnvekjandi, sérstaklega í ljósi þess að hægri popúlistaflokkar sem nærast á vantrausti, reiði og sundrungu, standa í vegi fyrir samfélagslegum framförum og afneita stærstu hættu samtímans sem er loftslagsváin. Hvað ætlar forsætisráðherra að gera til að snúa þeirri ógnvænlegu þróun við? Ég veit að þetta er langhlaup en við þurfum samt að fara í aðgerðir mjög fljótlega ef við ætlum að snúa þessari þróun við og koma í veg fyrir að við förum í sömu átt og margar þjóðir í kringum okkur.