staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Herra forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni sem tæpir á ýmsu í andsvari sínu. Mér finnst mjög mikilvægt að við stefnum öll að því. Trausti til stjórnmála verður ekki breytt og það verður ekki eflt af einhverjum einum einstaklingi. Það skiptir máli hvernig við vinnum sem heild en þar getur hins vegar einn einstaklingur eða fáir orðið til þess að draga mjög úr trausti. Það sem við getum gert er að breyta kerfinu okkar, breyta lagarammanum okkar, breyta regluverkinu. Þegar ég lít til baka yfir þau 12 ár sem ég hef verið á þingi hefur mjög mörgu miðað áfram í þeirri umgjörð, hvort sem litið er til þess sem ég nefndi áðan um upplýsingalög, hagsmunaskráningu eða siðareglur. Ekkert af þessu var til staðar árið 2007 þegar ég settist á þing. Samt var traust á Alþingi með hæsta móti þá. Á hverju byggði það traust? Við þurfum líka að spyrja okkur: Á hverju byggði það traust sem þá var á Alþingi? Því stundum byggir traustið kannski ekki endilega á traustum grunni. Í raun og veru var það miklu hærra en við sáum í löndunum í kringum okkur á sama tíma þannig að traustsmælingarnar 2007 (Forseti hringir.) urðu fyrir miklu áfalli. Við sjáum að þó að við séum sameiginlega að vinna að því að bæta þessa umgjörð, t.d. hér í þessum sal — sem ég tel að við höfum gert — þá geta einstakir atburðir skilað miklu vantrausti. (Forseti hringir.)
Ég biðst afsökunar. Það er mjög erfitt að tala um þetta mál á einni mínútu.
(Forseti (SJS): Forseti hefur fulla trú á hæfileikum þingmanna og hæstv. ráðherra til að segja mikið á einni mínútu.)