150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[16:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Eins og ég nefndi í ræðu minni sjáum við þá stöðu í hagkerfinu að verðbólga er nálægt verðbólgumarkmiði. Við sjáum stöðugleika þegar kemur að gjaldmiðlinum en á sama tíma sjáum við vaxandi atvinnuleysi. Þetta er, eins og bent hefur verið á, birtingarmynd kólnunar hagkerfisins sem við þurfum að glíma við en er þó með öðrum hætti en við höfum séð í fyrri hagsveiflum, ef við getum orðað það svo. Þetta er kólnun en ekki skyndileg djúpfrysting eins og við höfum stundum séð áður. Þá þurfum við líka að horfa til þess að lykillinn að þessum árangri er í fyrsta lagi ríkisfjármálastefnan og í öðru lagi stýritæki peningastefnunnar. Og það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að þrátt fyrir vaxtalækkanir Seðlabankans hefur vandinn verið hvernig vaxtalækkanir hafa í raun miðlast út í gegnum fjármálafyrirtækin. Ég nefndi hér áðan að hluti af því að við ákváðum að ráðast í lækkun á bankaskatti, fyrir utan að hann var auðvitað hugsaður sem tímabundin aðgerð í upphafi, er líka að létta fjármálafyrirtækjum róðurinn til að geta lánað út fjármuni í atvinnulífið því að eins og bent var á hér áðan mun velsæld til framtíðar, þó að við getum gert betur í opinberri fjárfestingu, byggjast á frumkvæði einkaaðila. Ég mun koma nánar að þessu í síðara svari.