150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[17:03]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Borgarlínan er frábært mál og mun ekki kosta neitt miðað við þann mikla hagnað sem við munum öll hafa af því máli. Ég er hins vegar ekki kominn hingað upp til að ræða hana heldur vanda okkar allra við að búa við ríkisstjórn sem við hv. þingmaður sameinumst í andstöðu við. Það hefur verið talað dálítið um forstofuherbergið í þessari ríkisstjórn, herbergið sem er að fyllast af málum. Svo virðist sem æ fleiri stórmál séu að festast í þessu forstofuherbergi og stjórnin virðist ætla að koma litlu fram. Mig langar að biðja hv. þingmann sem áhugamann um stjórnmál að velta vöngum yfir því hversu langan tíma þessi ríkisstjórn eigi eftir — að mati hv. þingmanns.