150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[17:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir að fá að spreyta sig áfram í þessu hlutverki. Ég óttast, rétt eins og ég óttast að lið hv. þingmanns vinni þegar kemur að deilum um öfgamál, að þessi ríkisstjórn muni sitja út allt kjörtímabilið vegna þess hvernig til hennar var stofnað. Þetta var aldrei ríkisstjórn um neina pólitíska framtíðarsýn. Hún stærði sig af því þegar hún tók við að hún væri ekki ríkisstjórn um tiltekin pólitísk áhersluefni heldur ætlaði að mynda breiða skírskotun, sem þau kölluðu svo. Það snerist í rauninni bara um að ná nógu mörgum þingmönnum með sér til að geta skipt á milli sín ráðherrastólum. Þeir ráðherrastólar eru þessari ríkisstjórn mjög kærir svoleiðis að ég efast um að það verði auðvelt fyrir þau að standa upp úr þeim ótilneydd.