150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[17:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Talsmenn ríkisstjórnarinnar stæra sig gjarnan af því að hafa ráðist í viðamikla lífskjarasókn, innviðauppbyggingu og unnið stórafrek í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. En við skulum skoða aðeins hver raunveruleikinn er núna í ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Hagvöxtur er horfinn og atvinnuleysi hefur tvöfaldast. Það ríkir neyðarástand á bráðamóttökunni og heilbrigðiskerfið allt er vanfjármagnað. Losun gróðurhúsalofttegunda hefur aukist, málefni útlendinga er í ólestri, veiðileyfagjöld eru helmingi lægri en þegar ríkisstjórnin tók við. Öryrkjar og eldri borgarar hafa dregist enn lengra aftur úr öðrum hópum þar sem lífskjarasamningurinn nær nefnilega ekki til allra Íslendinga, dómskerfið okkar er í uppnámi og við erum á gráum lista. Þetta er staðan þrátt fyrir að við Íslendingar höfum á undanförnum misserum búið við einstaka efnahagslega velsæld. Við í Samfylkingunni höfum reynt að standa vaktina og benda á að velferðin nær ekki til allra. Á meðan fjöldinn allur af fólki berst í bökkum verða örfáir ríkari og ríkari. Ríkisstjórnin gefur reyndar engin fyrirheit um raunverulegar breytingar í þágu jöfnuðar. Hana skortir auk þess alla framtíðarsýn. Hún hefur nú fengið næg tækifæri, hefur sýnt sitt rétta andlit og áherslurnar eru skýrar nú þegar fer að líða að kosningum.

Herra forseti. Fyrir kosningar voru heilbrigðismálin stærsta málið og kjósendur allra flokka settu þau í fyrsta sætið. En þrátt fyrir að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi réttlætt veru VG í ríkisstjórninni með því að flokkurinn væri að bjarga heilbrigðiskerfinu blasir frekar ófögur mynd við. Það er enn ósamið við fjölmennar kvennastéttir sem vinna gríðarlega mikilvægt starf við vondar aðstæður. Að undanförnu hefur líka dregist upp mynd af Landspítalanum sem við getum ekki sætt okkur við. Þá er heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni víða ógnað, jafnvel á stöðum sem reynslan sýnir að geta verið einangraðir frá höfuðborginni í marga daga. 5% raunaukning á fjármunum til Landspítalans getur varla talist sú stórsókn sem vænst var. Sama á raunar við um menntamálin líka. Þar hefur hæstv. menntamálaráðherra komið með stórkostlegar yfirlýsingar um aðra stórsókn en staðreyndin er að raunútgjöld til framhaldsskóla hafa dregist saman og framlög til háskóla hafa staðið í stað. Áfram erum við hálfdrættingar á við hin Norðurlöndin. Það sem er svo alvarlegt við þessa skammsýni er að fjárfesting í menntun er langlíklegasta trygging okkar fyrir því að við getum áfram verið samkeppnishæf á tímum stórkostlegra breytinga í heiminum. Menntun er ekki aðeins forsenda þess að við getum nýtt okkur möguleikana sem felast í tæknibyltingunni, ekki aðeins nauðsynleg þar sem lausnir á stærstu áskorunum munu felast í þekkingu, heldur er hún líka langlíklegust til að skila okkur upplýstara og heilbrigðara samfélagi.

Auk fjárfestingar í skólunum þurfum við líka að huga að unga fólkinu, unga námsfólkinu sem mun bera uppi lífsgæði landsins næstu áratugi. Menntun er jöfnunartæki og við tölum gjarnan um að við viljum veita öllum börnum jöfn tækifæri. Spurningin er: Gerum við það? Fjórðungur barna fær ekki viðunandi hjálp heima hjá sér. Innflytjendur koma mun verr út hér en á hinum Norðurlöndunum, alveg sama hvort við tölum um fyrstu kynslóð eða aðra kynslóð. Gleymum því ekki að þetta eru börn fólks sem hefur lagt ótrúlega þung lóð á vogarskálar efnahagslífsins á síðustu árum. Börn sem búa við fátækt koma líka verr út. Við verðum að bregðast við þessu þannig að ungt fólk hafi sem jöfnust tækifæri þegar það kemur út í lífið að loknu námi.

Atburðir vetrarins hafa líka beint kastljósi okkar að byggðaójöfnuði í landinu og hann þurfum við að leiðrétta. Óveður síðustu vikna með ófullburða rafmagnsdreifikerfi og snjóflóðum (Gripið fram í.) hafa dregið þetta skýrt fram. Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna þetta reyndar líka. Við eigum að þróa og við getum þróað samfélag þar sem allir landsmenn eiga sannarlega möguleika á góðri heilbrigðisþjónustu, fyrsta flokks menntun, ásættanlegum samgöngum og auðvitað allri annarri nauðsynlegri samfélagsþjónustu. Því miður skortir enn mikið á og fjölmörg dæmi sýna það. Til að ná þessu dugir einfaldlega ekki það hálfkák sem málamiðlanir í ósamstiga ríkisstjórn fæða af sér. Það er nefnilega ekki nóg að slá um sig með metnaðarfullum markmiðum í stjórnarsáttmála. Það þarf líka að hafa hugmyndaflug og framsýni til að setja fram skýrar aðgerðir og nægan kjark og samtakamátt til að fylgja þeim eftir. Við þurfum ríkisstjórn sem tryggir fólki öryggi og hverjum einstaklingi möguleika á því að þroska og rækta hæfileika sína, sér og öðrum til hagsbóta. Fámenn þjóð eins og Ísland hefur einfaldlega ekki ráð á því að skilja nokkurn eftir og verður að gefa öllum tækifæri til að leggjast á árar.

Herra forseti. Stærsta málið sem heimurinn stendur frammi fyrir núna er hlýnun jarðar. Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum kalla á festu, skipulag og framtíðarsýn langt fram í tímann. Við verðum að setja okkur metnaðarfyllri markmið sem eru tímasett, festa þau í lög og tryggja að aðgerðir séu fullfjármagnaðar. Þær geta vissulega verið íþyngjandi fyrir okkur til skamms tíma og þess vegna skiptir máli að í ríkisstjórn séu staðfastir einstaklingar sem fylgja eftir slíkum aðgerðum en eru um leið meðvitaðir um að við þurfum að verja veikustu hópa samfélagsins fyrir áhrifum þeirra, þó að allir þurfi að leggja sitt af mörkum. Framtíðaráskoranir eins og þessi og tæknibyltingin eiga auðvitað eftir að hafa mikil áhrif á líf okkar, vinnu og velsæld. Næstu ár verðum við að nota til að tryggja öllum viðunandi kjör þannig að breytingarnar skili auknum jöfnuði og meiri hamingju fyrir allt fólk. Stytting vinnuvikunnar er býsna nærtækt mál í því samhengi. Þar er um að ræða risastórt kjaramál sem hefði bæði áhrif á umhverfið og yki velsæld. Þá er ég ekki bara að tala um korter eða hálftíma, ég er að tala um jafnvel heilu vinnudagana, en til þess þurfum við að setja okkur langtímamarkmið og vinna markvisst að þeim.

Herra forseti. Sitjandi ríkisstjórn er kolfallin samkvæmt öllum skoðanakönnunum og þó að kannanir séu eitt og kosningar annað er ég ekki í vafa um að fólk hefur almennt ekki trú á ríkisstjórnarsamstarfi um kyrrstöðu eða skaðaminnkun eins og þetta stjórnarsamstarf er. Við getum vafalaust hér inni flest komið okkur saman um mjög mörg stór hagsmunamál og við skulum endilega gera það. En mörgum af þeim stóru áskorunum sem við stöndum núna frammi fyrir getum við aldrei mætt á fullnægjandi hátt með málamiðlunum ósamstiga flokka. Þessir flokkar virðast að vísu vera furðu samstæðir þegar kemur að óréttlátu fiskveiðistjórnarkerfi eða gamaldags landbúnaðarkerfi sem skilar mörgum bændum sultarkjörum eða veikum gjaldmiðli, sama hvaða hann kostar launafólk eða nýsköpunarfyrirtæki í landinu. En flokkar sem telja að aukinn jöfnuður sé eftirsóknarverður, vilja hertar aðgerðir gegn hamfarahlýnun og mæta framtíðinni af áræðni verða einfaldlega að fara að vinna saman. Ég held að það sé kominn tími til þess að við hættum að láta Sjálfstæðisflokkinn endalaust velja sér nýja dansfélaga eftir kosningar og stjórna síðan að eigin geðþótta. Nú er kominn tími samstilltrar djarfrar og víðsýnnar stjórnar, án Sjálfstæðisflokksins — fyrir allt fólkið í landinu og fyrir komandi kynslóðir. Það þarf að vera stjórn sem leggur áherslu á félagslegt réttlæti en hefur á sama tíma sköpunarkraft, framsýni og hugrekki. Samfylkingin er sannarlega til í slíkt samstarf.