150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.

[17:33]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hefði kannski þurft að vera eilítið nákvæmari. Ég er að tala um losun sem er beint á ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Þannig er staðan. Við erum að tala um stefnu þessarar ríkisstjórnar og þá ábyrgð sem hún ber, jafnt í þessum málum, efnahagsmálum og öðru. Mér þykja það hins vegar vera tíðindi ef hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson ætlar í raun að koma hingað upp og lýsa því yfir að hann sé sáttur við þær aðgerðir sem við höfum ráðist í og telji þær nægja. (Gripið fram í: Nei.) (Gripið fram í: Hann sagði það ekkert.) Það liggur fyrir að þær aðgerðir sem við berum ábyrgð á og stjórnvöld bera ábyrgð á hafa skilað meiri losun að undanförnu. Við hljótum þá að gera kröfu um metnaðarfyllri aðgerðir.

Ég vil miklu frekar spyrja hv. þingmann hvort hann vilji ekki fá með í samstarf flokka sem vilja fylgja VG í (Forseti hringir.) ríkari mæli en samstarfsaðilarnir núna.