150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[17:47]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt ógurlega ósammála mörgu sem þar kom fram. Hins vegar verð ég að segja að á kjörtímabilinu eftir hrun, 2009–2013, var flokkur hv. þingmanns við stjórn og er henni nú oft bölvað í sand og ösku, enda kannski ekki skrýtið miðað við tíðarandann og voru ekki aðstæður sem hægt var að búast við að neinn kæmist heill út úr í raun og veru, svona í stjórnmálalegum skilningi. Þó verð ég að segja eitt um það kjörtímabil. Mér fannst flokkur hv. þingmanns þá í raun og veru reyna að breyta of mörgu í einu. Það voru umhverfislög, það var RÚV, stjórnarskráin og ESB. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann aðeins út í forgangsröðun vegna þess að þrátt fyrir að ég finni ekki margt í ræðu hv. þingmanns sem ég gæti kýtt við hann um finnst mér svo mikilvægt að forgangsröðun okkar stjórnmálamanna þegar kemur að því að breyta undirstöðum stjórnarfarsins sé alveg skýr — og þá á ég við stjórnarskrána sem ég myndi setja í æðsta forgang. (Forseti hringir.)

Mig langar að heyra viðhorf hv. þingmanns hvað varðar forgangsröðun þegar kemur að hugmyndum hans um að bæta stjórnarfar, (Forseti hringir.) sér í lagi hvernig stjórnmálin virka.