150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[17:51]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Vitanlega er mér kært um að við fáum hér nýja stjórnarskrá, þó það nú væri. Það var þáverandi forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir sem hóf þetta ferli og setti það á oddinn. Auðvitað munum við reyna að fylgja því eftir. Það getur hins vegar átt sér stað samhliða öðrum verkefnum. Á meðan það er til fólk í landinu sem á ekki til hnífs og skeiðar, getur ekki lifað frá mánuði til mánaðar, getur ekki leyft börnunum sínum að sækja tómstundir, sækir sér ekki heilbrigðisþjónustu, býr jafnvel við óöryggi og örvæntingu, þá mun ég samt sem áður alltaf setja það verkefni í fyrsta sæti. En við tökum stjórnarskrána með.