staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Virðulegi forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að lýsa yfir ánægju með það fyrirkomulag að koma saman eftir hlé með því að setja af stað umræðu um stjórnmálaviðhorf, líta fram veginn, og sýnist mér sem vel takist til með þetta fyrirkomulag sem við þekkjum. Það er freistandi að líta aðeins um öxl um leið og rætt er um framtíðina og mig langar að láta þess getið hér að það var fróðlegt að hlýða á forseta Alþingis undir lok þings fyrir jól þegar hann fór yfir afköst vetrarins. Það var áberandi hversu mörg mál kláruðust á þinginu og þó að árangur í störfum ríkisstjórnar verði ekki mældur eingöngu í fjölda þingmála var sú upptalning mjög á skjön við þær fullyrðingar sem oft heyrðust í þingsal, að það vantaði mál frá ríkisstjórninni. Sögulega mörg mál voru afgreidd á haustþinginu. Meðal þeirra sem kláruðust þá var frumvarp sem ég hafði lagt fram um að lækka skatta. Þeir lækkuðu fyrir árið 2020 um 9,5 milljarða kr. Þar vegur þyngst lækkun tryggingagjaldsins og lækkun tekjuskatts einstaklinga. Fyrir rétt u.þ.b. ári settum við í loftið vef sem heitir tekjusagan.is þar sem sjá má á einfaldan hátt þróun og samsetningu tekna landsmanna allt frá árinu 1991. Þetta er alveg einstakur vefur til að skoða lífskjaraþróun á Íslandi og eins líka félagslegan hreyfanleika. Sú saga sem þar er sögð sýnir ekki síst ótrúlega kaupmáttaraukningu síðustu ára og sú kaupmáttaraukning var af skynsemi varin með ábyrgum kjarasamningum á almennum markaði síðasta vor. Þar var gengið frá tímamótasamningum með stuðningi stjórnvalda í formi aðgerða sem spanna allt frá því sem ég hef hér nefnt, lækkun skatta, en líka öðru, svo sem lengra fæðingarorlofi og úrræðum í húsnæðismálum. Þessir samningar lögðu línuna fyrir samninga á opinberum markaði sem ég bind vonir við að verði siglt í örugga höfn í samræmi við þann ramma sem til ráðstöfunar er. Þetta mikla framlag vinnumarkaðarins er auðvitað mjög þakkarvert í þágu stöðugleika og framhalds á lífskjarasókninni fyrir alla landsmenn.
Við sjáum um þessar mundir hverju það skilar þegar opinber fjármál, vinnumarkaður og framkvæmd peningastefnunnar leggst allt á sömu sveif. Við búum við litla verðbólgu, sjáum mjög lága húsnæðisvexti, þá lægstu sem við höfum séð, ríkissjóður hefur verið í færum til að lækka skuldir sínar og nýtur þess vegna bestu sögulegu kjara. Þetta eru efnislegir mælikvarðar sem skipta miklu um þau lífsgæði sem við getum notið hér í dag en ekki síst til framtíðar, bæði til skamms og lengri tíma, vegna þess að hér er rætt um það hvernig við getum búið betur að öllum almenningi, veitt góða heilbrigðisþjónustu sem við höfum á undanförnum árum sett fremst í forgangsröðina ásamt því að bæta sérstaklega kjör þeirra sem minnst hafa. En til að mæla þann kjarna sem ég er að nefna, hvernig við höfum það raunverulega, hvernig við getum mælt það, hefur ríkisstjórnin ekki bara opnað á þessi sögulegu gögn, þetta er algjörlega einstakur vefur í alþjóðlegum samanburði, heldur höfum við líka nýlega ákveðið að taka upp fleiri mælikvarða og höfum kynnt til sögunnar nýja mælikvarða um hagsæld og lífsgæði sem munu hafa áhrif á mat okkar á árangri á mikilvægum sviðum í framtíðinni.
Ég get líka nefnt að á haustþinginu ákváðum við að fella niður ýmis önnur gjöld, svo sem virðisaukaskatt á reiðhjól, rafmagnshjól og umhverfisvæn bifhjól upp að ákveðnu hámarki og við framlengdum ívilnanir fyrir bíla sem ganga fyrir öðru en bensíni og dísilolíu. Þarna vinna saman markmið sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum lagt áherslu á, að lækka skatta á almenning og draga úr neikvæðum loftslagsáhrifum með því að ýta undir umhverfisvænni samgöngur. Samgöngur eru okkur hugleiknar. Við kynntum til sögunnar í haust langtímasamkomulag við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sem miðar að betri og umhverfisvænni umferð, auk þess sem þessi ríkisstjórn hefur fest í sessi áætlanir um mjög mikilvægar samgöngubætur um allt land.
Fyrir utanaðkomandi sjást þess fá merki í umræðunni að við séum stödd á landi þar sem lífsgæði eru í fremstu röð meðal allra þjóða. Það verður gríðarlega krefjandi verkefni að viðhalda þeirri stöðu. Samkeppnishæfni landsins skiptir þar mjög miklu máli og hvernig við nálgumst úrlausnarefni hverju sinni.
Menn geta ekki fengið allt. Vilji menn búa í hálaunalandi, landi þar sem laun eru hvað hæst meðal þjóða, bjóða menn heim hættunni á því að fjárfesting dali. Vilji menn tryggja að Íslendingar greiði hæst laun allra landa er staðreynd að hagvexti í slíku landi eru skorður settar. Þetta sjáum við t.d. í nýlegri Vísbendingu þar sem Gylfi Zoëga skrifar um þær þekktu staðreyndir að það er hætta á minni fjárfestingu í landi þar sem laun eru há í samanburði við framleiðni. Við þurfum að ræða af heiðarleika hvort við séum á leiðinni að réttu jafnvægi þegar við leggjum sífellt áherslu á að laun hér á landi séu hærri en annars staðar. Það er svo sannarlega eftirsóknarverð staða en hún fæst ekki án fórnarkostnaðar og almennt held ég að við verðum að gangast við því að í þingsal er oft horft fram hjá algildum lögmálum eins og því í hagfræðinni að við höfum aldrei úr nægum gæðum að spila til að leysa hvers manns vanda. Gæðin sem við höfum úr að spila eru of takmörkuð til að leysa öll vandamál. Þetta er þekkt lögmál úr hagfræðinni en á vettvangi stjórnmálanna hefur því verið haldið fram af hagfræðingum að fyrsta lögmálið sé að hunsa þetta lögmál hagfræðinnar, að láta í veðri vaka að við höfum úr endalausum sjóðum að spila til að leysa hvern þann vanda sem menn vilja taka til umræðu hverju sinni.
Þetta vil ég nefna vegna þess að ég heyri ákall um lausn á stórum málum sem krefjast aukinna ríkisútgjalda á sama tíma og menn kvarta undan því að ríkisútgjöld hafi vaxið um of og gjarnan þegar rætt er um vöxt ríkisútgjalda undanfarinna ára í þingsal skauta menn mjög léttilega fram hjá því hvar þau hafa helst vaxið. Þau hafa helst vaxið í almannatryggingum þar sem við beitum reglum til að tryggja að fjármunirnir skili sér best til þeirra sem hafa minnst.
Það er líka mikill vöxtur í framlögum til heilbrigðiskerfisins. Mestur vöxtur í öllum frumgjöldin þessarar ríkisstjórnar er til heilbrigðismála. Hátt hlutfall af því sem gengur til rekstrar í heilbrigðismálum gengur til þess að tryggja betri laun þeirra sem þar starfa, enda er stutt síðan við vorum í umræðu um að tryggja þyrfti betri laun þeirra sem starfa í heilbrigðisstéttunum en minna fer fyrir þeirri umræðu í dag. Það sýnir hversu mikilli breytingu hefur verið náð fram á skömmum tíma. Þetta er forgangsröðun sem menn skauta léttilega fram hjá þegar þeir kalla eftir því að peningunum sé endurraðað með einhverjum hætti.
Það er kallað eftir því að horft verði til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og ég tek undir þær áherslur að við þurfum að horfa til þess þar sem störfin eru flest á Íslandi, spyrja okkur hvað við getum gert til að örva að nýju atvinnustarfsemi sem geymir flest störfin í landinu, hvað við getum gert til að auka súrefni til þeirra. Samt sem áður verður ekki horft fram hjá þeirri staðreynd sem ég nefndi áðan að á meðan Ísland er með hvað hæst laun á Norðurlöndum eða innan OECD verður þeim fyrirtækjum dálítið þröngur stakkur sniðinn og það eru líkur til þess að þar göngum við nú í gegnum tímabil ákveðinnar hagræðingar. Við skulum líka velta fyrir okkur í þessu samhengi hvort við búum ekki við jafnvægi eins og það sem við upplifum núna með lágu vaxtastigi og verðbólgu í kringum markmið vegna þess að sögulega höfum við mátt venjast því að vera ýmist í kreppu eða spennu. Séu menn að leita eftir því að komast í spennustigið grunar mig að menn muni fljótlega fara að tala um hversu eftirsóknarvert væri að komast í jafnvægið að nýju þar sem við erum u.þ.b. stödd í dag.
Virðulegi forseti. Ég held að verkefnin (Forseti hringir.) fram undan séu krefjandi en leysanleg og að okkar bíði afkastamikið og framsækið vorþing.