150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.

[18:08]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir að við búum í besta landi í heimi, séum með bestu lífskjörin, allt rosalega frábært, en þetta er samt sami fjármálaráðherrann og sagði á sínum tíma að hann myndi ekki treysta sér til að lifa af lægstu bótum almannatrygginga Tryggingastofnunar ríkisins með börn á framfæri sínu. Hvort hann stendur við það enn þá væri mjög gott að vita og ef hann stendur við það hvernig hann ætli að leysa vanda þeirra einstaklinga sem þarna eiga í hlut. Við vitum að það finnast einstaklingar með undir 200.000 kr. og svo er stór hópur sem hefur rétt yfir 200.000 kr. til að lifa af á mánuði. Allir gera sér grein fyrir því að það er svo til vonlaust.

Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Er hann með einhver plön um að sjá til þess að þessi hópur geti lifað mannsæmandi lífi, geti lifað af bótunum, treysti sér til þess sem hann treysti sér ekki til að gera sjálfur?