staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Herra forseti. Það er gleðilegt að heyra þetta. Þeirri viðbáru hefur oft verið beitt að það eigi að nota framkvæmdir af þessu tagi sem einhvers konar sveiflujöfnunartæki. Ég held að það sé orðið löngu tímabært að leggja af þann hugsunarhátt. Það getur ekki verið sveiflujöfnunartæki þegar við erum með öryggi borgaranna annars vegar. Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með því að framkvæmdum verði haldið fram og hafnar framkvæmdir af fullum þunga á komandi misserum. Fjármálaráðherra mun eiga stuðning þar og ég trúi því og treysti að hann meini það sem hann segi. Þetta eru miklar framkvæmdir, þær kosta mikið fé og það verður áskorun fyrir hæstv. ríkisstjórn að finna þeim framkvæmdum fé innan þess (Forseti hringir.) fjárhagsramma sem ríkisstjórnin hefur. Það verður spennandi að sjá hvernig hún leysir úr því.