staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Forseti. Ég hef nefnilega áhyggjur af þessari stöðu í ljósi þess að þó að það hafi komið fram í landsfundarályktunum Sjálfstæðisflokksins, sem rataði inn í stefnuskrána, kosningaloforð og stefnuskrá ríkisstjórnar, að starfsfólkið væri hryggjarstykkið í kerfinu og ætti að setja það í forgang, þá var það ekki gert þegar starfsfólkið, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður og fleiri stéttir í heilbrigðiskerfinu, fóru í verkfall. Það var sett lögbann á verkfallið. Mánuði áður en það verkfall skall á var landlæknir búinn að segja að það væri neyðarástand í heilbrigðiskerfinu og það þyrfti með einum eða öðrum hætti að leysa þann vanda. Landsmenn voru búnir að segja að þeir vildu forgangsraða í heilbrigðiskerfið, 90% landsmanna settu það í forgang þannig að þarna voru peningarnir og þarna voru loforðin. Það var ekki vilji að klára það dæmi. Það var sett lögbann á verkfallið.
Nú er það orðið ljóst, fyrir níu mánuðum segir í yfirlýsingu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, að þolinmæðin sé á þrotum og þeim finnst að fulltrúar fjármálaráðherra í þessari (Forseti hringir.) samningalotu séu ekki að standa sig þannig að ég myndi segja að sporin hræði. Í þessum stjórnarsáttmála er ekki talað um að starfsfólkið sé hryggjarstykkið eða neitt slíkt (Forseti hringir.) þannig að það er ekki einu sinni loforð til staðar um þetta. Þess vegna hef ég áhyggjur og (Forseti hringir.) og vona að fjármálaráðherra lini mjög fljótlega þær þjáningar fólks þannig að það komist einhver ró á þetta.