150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[18:30]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Frú forseti. Við erum hér saman komin til að ræða stöðuna í stjórnmálum í byrjun árs og verkefnin fram undan. Árið er 2020 og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, hæstv. forsætisráðherra, hefur verið við völd í rúm tvö ár. Allt frá myndun ríkisstjórnarinnar höfum við fengið að heyra að hún sé eitthvað alveg nýtt og muni vísa veginn í átt að bættum vinnubrögðum, félagslegri sátt og stöðugleika til lengri tíma. Þetta er ríkisstjórn sem hefur það að yfirlýstu markmiði sínu að efla Alþingi og traust almennings á stjórnmálum og stofnunum samfélagsins. Þessi sýn stjórnarflokkanna endurspeglast í inngangsorðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem fram kemur, með leyfi forseta:

„Í nýrri ríkisstjórn munu flokkar sem spanna hið pólitíska litróf allt frá vinstri til hægri freista þess að slá nýjan tón, einhenda sér í þau lykilverkefni sem koma Íslandi í fremstu röð og búa þannig um hnútana að hér verði gott að lifa og starfa fyrir unga sem aldna. […]

Stefna þarf að stöðugleika til lengri tíma og auka gagnsæi í athafnalífi og allri stjórnsýslu til að efla traust almennings á rekstri fyrirtækja, fjármálalífi, stjórnmálum og stofnunum samfélagsins. Frá efnahagshruninu hefur náðst margvíslegur árangur en enn skortir á þá félagslegu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir. Að henni þarf að vinna.“

Þetta voru fyrirheit ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í lok árs 2017 og því ekki úr vegi að ræða hvernig henni hefur miðað í að standa við fögur fyrirheit í ársbyrjun 2020. Hafa þessir flokkar slegið nýjan tón, eins og þeir komast að orði? Hafa þeir stefnt að stöðugleika til lengri tíma? Hafa þeir eflt traust almennings á rekstri fyrirtækja, á fjármálalífinu, nú eða stofnunum og stjórnmálum almennt? Höfum við þokast í átt að þeirri félagslegu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir?

Forseti. Sjálf hef ég lengi hlustað eftir þessum nýja tón sem slá átti með myndun þessarar ríkisstjórnar, tón sátta, ábyrgðar, heiðarleika, tón sem tekur gagnrýni fagnandi og vinnur stöðugt að eflingu trausts með gagnsæjum og vönduðum vinnubrögðum. Þess í stað heyri ég sama gamla tóninn, sama tóninn og hljómað hefur í íslenskum stjórnmálum um áraraðir. Sá tónn er falskur, herra forseti, þótt fagurgalinn heyrist inn á milli. Sá tónn felst í að viðurkenna aldrei mistök, axla aldrei ábyrgð á gjörðum sínum. Hann felst í að endurskrifa söguna eftir eigin hentisemi, sama í hversu hróplegu ósamræmi sú saga er við sannleikann. Sá tónn felst í því að beita þöggunartilburðum með því að finna blóraböggla og skjóta sendiboðann. Tónninn sem sendur er er skýr. Það er verra að benda á vandamálin en að skapa þau. Það er vont að tala um neyðarástand í heilbrigðisþjónustunni, segir heilbrigðisráðherra. Það er ósanngjarnt að tala um vanhæfi sjávarútvegsráðherra, segir forsætisráðherra. Það er bara pólitík að tala um vanhæfi sjávarútvegsráðherra, segir sjávarútvegsráðherra.

Forseti. Þegar spurt er um verkefnin fram undan þá eru þau ærin. Meðal þeirra er að brýna ríkisstjórnina til að standa við gefin loforð um eflingu trausts á stjórnmálum og stofnunum. Til þess höfum við ágætisleiðarvísi sem finna má í skýrslu frá starfshópi forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum. Í skýrslunni er m.a. komið inn á traust til fjármálastofnana og löggjafans en þar segir, með leyfi forseta:

„… það er áberandi að traust til fjármálastofnana og löggjafans er lítið. Slíkt vantraust má rekja til fjármálahrunsins 2008 sem þegar á heildina er litið hafði neikvæð áhrif á upplifun fólks af stofnunum. Traustið sem glataðist haustið 2008 hefur ekki verið endurheimt.“

Ég get ekki annað en tekið undir þessa ályktun skýrsluhöfunda enda munum við öll hrunið, hrunið þar sem ævintýralegur blekkingaleikur ríkisstjórnarinnar um stöðu bankanna, vanhæfni og vangeta ríkisstofnana, þá sérstaklega fjármálastofnana, til að verja hagsmuni almennings gegn græðgi og svikum óprúttinna fjárglæframanna, ásamt óheiðarlegum og gríðarlegum tengslum á milli stjórnvalda og viðskiptalífsins, rústaði því mikla trausti sem Íslendingar báru til stjórnkerfisins fram að því.

Eftir hrun varð almenningur síðan vitni að hverjum svikunum á fætur öðrum, ekki bara þeim sem áttu sér stað í aðdraganda hrunsins heldur líka sviknum loforðum stjórnmálamanna gagnvart borgurunum allt fram að deginum í dag. Í þeim efnum má nefna svik á endurteknum loforðum um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Það má nefna svik á lögfestingu nýrrar stjórnarskrár sem samþykkt var með góðum meiri hluta kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu og það má nefna svik sem lýstu sér í því að margir þeirra sem kostuðu almenning lífeyrissparnaðinn hans, styrk innviðanna í samfélaginu, vinnuna sína og launin höfðu flúið með gróðann í skattaskjól og skildu almenning eftir með reikninginn. Sú flétta varð okkur öllum ljós þegar Panama-skjölin urðu opinber. Þau skjöl leiddu einnig í ljós að þrír ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar áttu eignir í skattaskjóli. Hver tók ábyrgð á þeim bænum? Kannski forsætisráðherrann sem hrökklaðist úr starfi en sætti að öðru leyti engum afleiðingum þess hagsmunaárekstrar sem hann leyndi þjóðina?

Virðulegi forseti. Í skýrslu um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu kemur einnig fram að rannsóknir fræðimanna sýna að sterk tengsl eru á milli trausts og ábyrgðar. Takist stjórnvöldum ekki að gefa almenningi til kynna að starfsemi stjórnkerfisins sé í höndum hæfs fólks, jafnt kjörinna fulltrúa sem starfsfólks stjórnsýslu, getur traust ekki skapast. Í ljósi þessarar augljósu ályktunar nefndarinnar hlýt ég að spyrja hvernig þáverandi fjármálaráðherra, sem sjálfur er einn þeirra ráðherra sem geymdu peninga í skattaskjóli, geti enn þann dag í dag notið trausts sem slíkur. Er nema von að ég spyrji hvernig fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem leyndi þolendur kynferðisofbeldis upplýsingum um aðdraganda uppreistar æru barnaníðinga í trássi við upplýsingalög til verndar æru fjármálaráðherrans núverandi, gat notið trausts sem slíkur?

Fyrst þetta kerfislæga ábyrgðarleysi fær augljóslega að viðgangast ár eftir ár, að því er virðist nánast án undantekninga, sendir það auðvitað skilaboð út í samfélagið um að svona skuli taka á mistökum, að svona skuli takast á við lögbrot. Skilaboð sem ég heyri enduróma í þeim tóni sem forsvarsmenn Samherja senda út í samfélagið um þessar mundir.

Forseti. Fyrr í dag stóð hér fyrir utan þinghúsið fólk sem heyrir ekki þennan nýja tón sem boðaður var. Hér fyrir utan stóð fólk sem enn þá kallar eftir félagslegri sátt, sáttinni sem ríkisstjórnin þó viðurkennir að þjóðin hafi lengi kallað eftir. Þau kalla eftir því að sjávarútvegsráðherra segi tafarlaust af sér embætti, að Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu, með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu og að arðurinn af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og til að tryggja mannsæmandi lífskjör allra.

Forseti. Flokkarnir sem mynda ríkisstjórn Íslands í dag hafa haft mislangan tíma til að tryggja að farið verði að vilja þjóðarinnar um innleiðingu nýrrar stjórnarskrár en allir hafa þeir haft tækifæri til þess. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn völdu að stinga stjórnarskránni ofan í skúffu þegar þeir tóku við stjórnartaumunum árið 2013. Vinstrihreyfingin – grænt framboð valdi svo árið 2017 að mynda ríkisstjórn með þessum flokkum sem hafa sýnt það í verki að þeir standa í vegi fyrir kröfu þjóðarinnar um nýjan samfélagssáttmála. Því miður er staðan enn þá sú árið 2020 að meiri hluta þessa þings finnst ásættanlegt að geyma nýju stjórnarskrána áfram ofan í skúffu og semja frekar sín á milli um einstök ákvæði hennar.

Þessi staða grefur auðvitað undan trausti almennings, stjórnarskrárgjafanum, á stjórnmálunum, almenningi sem á að setja okkur löggjafanum leikreglurnar. Ég get því ekki séð að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi unnið af heilum hug við að efla traust almennings á stjórnmálum. En ég hlusta enn, forseti, með opin eyru, opin augu og von í hjarta um að brátt heyri ég nýjan tón hljóma í þessum sal.