150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.

[18:44]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta ágæta andsvar. Við stöndum sem þjóð frammi fyrir ótal mörgum stórum málum sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt að þjóðin hafi meiri og stærri tækifæri til að koma að. Svo sannarlega held ég að ný stjórnarskrá myndi opna á það, eins og hv. þingmaður kom inn á, en meðal stóru málanna sem ég saknaði örlítið að hv. þingmaður kæmi inn á í ræðu sinni áðan eru loftslagsmálin. Ég held að loftslagsmálin séu ofboðslega gott dæmi um það sem allir Íslendingar, þing og þjóð, forseti — við öll þurfum að koma saman að og taka í sameiningu ákvarðanir um hvernig við ætlum að leggja okkar af mörkum sem þjóð til að takast á við þann alheimsvanda sem loftslagsmálin eru.

Mig langar þess vegna til að spyrja hv. þingmann hvort hv. þingmanni finnist við taka nægilega stór og ákveðin skref í loftslagsmálum í dag til að bregðast við þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir, sérstaklega miðað við það sem núverandi ríkisstjórn hefur verið að gera og þau markmið sem núverandi ríkisstjórn hefur sett sér. Telur hv. þingmaður að við göngum nógu langt? Í því samhengi spyr ég líka: Hvaða skref telur hv. þingmaður mikilvægt að við tökum í þá átt? Eru mögulega einhver svör í nýrri stjórnarskrá?