150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[18:57]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns. Ég kom inn á það í ræðu minni að hin veikari samfélög á Íslandi eru of veik og náttúran og ofsinn í veðrinu síðastliðnar sex vikur hefur afhjúpað veikleika sem við þurfum að takast á við og ég held að við séum í færum til þess. Við þurfum einfaldlega að forgangsraða meiri fjármunum og meiri atorku okkar og huga og fylgjast betur með því að byggja þau kerfi betur upp hringinn í kringum landið. Þegar síðan kemur að atvinnumálunum, og hér var Flateyri einmitt nefnd sérstaklega, þá var athygli mín vakin á því að þetta mál væri til umfjöllunar hjá Byggðastofnun, hinn sértæki byggðakvóti, sem mér fannst vera mjög sérkennilegt. Þannig að ég óskaði eftir því við Byggðastofnun að það yrði tekið til sérstakrar skoðunar að fara þessa leið. Það var gert. Síðan reyndist niðurstaðan því miður vera sú að menn héldu sig við þá hugmynd að færa þennan sértæka byggðakvóta til næsta samfélags, sem vissulega er í sama sveitarfélagi, en byggja upp annars konar vinnslu á Flateyri. Ég mun einfaldlega að segja við það fólk og sagði við það (Forseti hringir.) þegar ég hitti það fyrir vestan að ef stjórnsýslan hefur brugðist í þessum málum skal kæra það, það er hægt, til ráðuneyta. (Forseti hringir.) Ég get auðvitað ekki haft beina aðkomu að því. Verkefnið er á könnu Byggðastofnunar og stjórn Byggðastofnunar tók ákvörðun um þetta.