150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[19:01]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil einfaldlega taka undir með hv. þm. Guðjóni Brjánssyni. Ég fann fyrir þessum sama eldmóði og æðruleysi fólks á Flateyri þegar við heimsóttum það, oddvitar ríkisstjórnarflokkanna. Við erum sammála um það og ég mun beita mér fyrir því og við munum styðja við fólkið fyrir vestan til að gera það sem gera þarf. Ég get hins vegar ekki lagt á borð einhverja patentlausn hér og nú. Við þurfum að eiga það samtal við fólkið fyrir vestan, við sveitarstjórnina, við íbúana í samfélaginu á Flateyri og finna réttu leiðirnar til þess. Ég fullyrði það að ríkisstjórnin er tilbúin að gera það sem skynsamlegt er að gera til að laga það sem hefur farið úrskeiðis í traustinu, um öryggi og framtíðarsýn. Fólkið sem þarna býr vill búa þarna og við sáum það svo gjörla, líka unga fólkið sem hefur verið þar, nemendur við lýðskólann. Hann skiptir líka máli.