150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[19:02]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú eru umhverfismálin ansi stór og viðamikil og í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er markmiðið að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila. Í frétt RÚV kemur fram, með leyfi forseta:

„Sigurður Ingi segir að samráðið hafi verið gott en hann hafi sett ýmis skilyrði áður en samþykkt var að hálendisþjóðgarður færi í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hann vill ekki svara því hvort hann styðji þjóðgarð á hálendinu …“

Spurning mín til hæstv. ráðherra er mjög einföld: Hvaða skilyrði voru þetta og af hverju getur ráðherra ekki svarað því hvort hann styðji þjóðgarð á hálendinu miðað við hvað stendur í stjórnarsáttmálanum?