staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.
Frú forseti. Það voru aldrei mín orð í samtali við fjölmiðla og það er bara hv. þingmaður sem ber það upp að ég hafi ekki verið tilbúinn að lýsa yfir stuðningi við þjóðgarðinn. Það er verkefni stjórnarsáttmálans. Við erum að vinna að því. Ég hef aðeins sagt að nú eru þessi drög í samráðsgátt og við þurfum að leggjast vel yfir þau. Það eru neikvæðar umsagnir sem koma frá sveitarfélögunum og sem sveitarstjórnarráðherra finnst mér ég vera skyldugur til að benda á það að þrátt fyrir að þau hafi átt aðild að þessum hópi þá hafi það samtal ekki endað nægilega vel, það sé alla vega ekki sameiginlegur skilningur á þeirri niðurstöðu. Þannig að það er nú bara fjölmiðlamaðurinn sem ákveður að ég hafi ekki sagt eitthvað slíkt. En við skulum halda áfram þeirri vinnu. Eins og ég kom inn á í ræðu munum við Framsóknarmenn vinna af heilindum að því að framfylgja stjórnarsáttmálanum og þeim leiðum sem þar eru fyrir. En við þurfum líka að hlusta á fólk, alveg eins og við höfum sagst ætla að gera annars staðar á landinu og í öðrum verkefnum.
Varðandi veggjöldin ætla ég að svara því þannig: Samgönguáætlun stendur fyrir sig. PPP-verkefnin standa fyrir sig. Þar verður gjaldtaka eins og var í Hvalfjarðargöngunum og aðrar áætlanir eru ekki uppi (Forseti hringir.) nema á höfuðborgarsvæðinu. Eins og hv. þingmaður veit væntanlega er það skattur sem væntanlega kemur fram sem frumvarp frá fjármálaráðherra þegar þarf.