150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[19:07]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir prýðisræðu og ætla að inna ráðherrann eftir þingsályktunartillögu um rammaáætlun og eins um miðhálendisþjóðgarðinn. Nú eru þessi tvö mál búin að vera í samráðsgátt og eru að koma inn í þingið samkvæmt áætlun í febrúar. Ráðherrann sagði í viðtali í fréttum í gær að hann vildi hlusta á vilja sveitarfélaga í þessu máli. Í svari ráðherrans hér áðan var það eitt af skilyrðum hans um að samþykkja þetta frumvarp inn í þingið að sveitarfélög væru ekki á móti málinu. En nú er það greinilegt að þau eru algjörlega á móti. Það sýnir sig á fundum sem haldnir voru á Suðurlandi. Er ráðherrann sáttur við að umhverfisráðherra sé kominn með málið þetta langt ef þau atriði eru ekki inni sem hann taldi hér upp áðan að hann hefði gert skilyrði um varðandi þetta frumvarp?