150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[19:10]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir þessi svör. Ég get verið sammála því að miðhálendisþjóðgarður eða þjóðgarður, hvernig sem hann er, þarf að vinnast mjög vel áður en hann er samþykktur. Ég hef áhyggjur af afhendingaröryggi raforku í því sambandi og virkjunarkostum og þess vegna hefði ég kosið það, og spyr kannski ráðherrann um það, að rammaáætlun um nýtingu hefði farið fyrst í gegnum þingið áður en miðhálendisþjóðgarður yrði afgreiddur. Þar sem tíminn er stuttur langar mig bara til að spyrja ráðherrann: Telur ráðherrann líklegt að frumvarp um miðhálendisþjóðgarð verði samþykkt á þessu vorþingi fyrir sumarhlé?