staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Virðulegur forseti. Það hefur brugðið við núna í vetur, kannski líka í fyrravetur, að það er ákveðinn misskilningur eða oftúlkun á því hvað það er að setja verkefni inn í samráðsgátt stjórnvalda. Það er auðvitað tæki til að fá fram viðbrögð og umsagnir. Ef þær eru mjög neikvæðar þá hefur það gerst í einstökum tilfellum að mál hafi einfaldlega verið tekin til baka og ekki komið fram eða komið fram síðar eða þá, sem er algengast, að þau taki breytingum. Það hefur ekkert frumvarp enn verið lagt fram, hvorki í ríkisstjórn né fyrir þing. Þessi drög að frumvarpi umhverfisráðherra eru í samráðsgátt, lýkur í dag og ég hvet alla þá sem vilja senda inn umsagnir að gera það í síðasta lagi í dag, ég held að það sé síðasti dagurinn. Síðan tekur auðvitað umhverfisráðherra og ráðuneytið þær umsagnir og athugasemdir og þá getur orðið breyting á málinu til þess einmitt að reyna að ná breiðari sátt. Ég tek undir með hv. þingmanni, ég held að það sé mjög mikilvægt í svo stóru máli að (Forseti hringir.) við náum eins breiðri sátt og hægt er. Hvenær við ljúkum síðan þeirri vinnu fer auðvitað eftir því hversu breið sáttin verður.