staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en þá svarar hann mér sennilega bara skýrt og skorinort: Hvers vegna í ósköpunum hafa öryrkjar og aldraðir ekki fengið lífskjarasamninga? Hvers vegna eru öryrkjar og aldraðir eini hópurinn sem ekki hefur fengið kjaraleiðréttingar? Ef þetta er svona einfalt, ef þið eruð að gera þetta, þá hljótið þið líka að geta svarað því: Hvers vegna hafa þeir ekki fengið lífskjarasamning? Hvers vegna hafa þeir ekki fengið kjaraleiðréttingar og hvenær eiga þeir að fá þær? Það hlýtur að eiga að sjá til þess nema það sé ákveðið og búið að ganga frá því þannig að það sé skrifað í sáttmálann að þessi hópur eigi ekki að fá leiðréttingu og eigi ekki að fá nema bara brotabrot af þeim hækkunum sem aðrir hafa fengið. Það sést best á því að um áramótin, bara fyrir nokkrum dögum, voru eldri borgarar og öryrkjar að fá rétt um 3% á sama tíma og launahækkanir hafa verið 7%. Ég bið hæstv. ráðherra að skýra þetta út fyrir mér: Hvers vegna í ósköpunum eiga þessir hópar að fá yfirleitt helmingi minna en allir hinir?