staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður veit vel að þegar hann heldur þessar ræður um að ekkert hafi verið gert fyrir aldraða og öryrkja þá fer hann með rangt mál. Við breyttum kerfinu fyrir aldraða fyrir nokkrum árum sem varð til þess að kaupmáttaraukning þeirra varð umtalsvert meiri en allflestra annarra í samfélaginu. Núna hefur ríkisstjórnin í tengslum við lífskjarasamninga gert ýmislegt, þar á meðal breytt skattkerfinu sem kemur einmitt þeim best og mest til góða sem minnstar hafa tekjurnar, þar á meðal báðum þeim hópum sem hv. þingmaður vísar til. Við höfum átt í langvarandi samtali við forsvarsmenn öryrkja og ég vona svo sannarlega að við náum að ljúka því samtali, komast í kerfisbreytingu sambærilega þeirri sem við gerðum með aldraða fyrir nokkrum árum þannig að við séum komin á sama stað með báða þessa hópa. Hv. þingmaður veit vel að þetta er svona og getur ekki komið upp daginn út og daginn inn og haldið því fram að við séum ekki að gera nákvæmlega það sem við erum að gera.