150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[19:28]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún var svolítill lofsöngur um hve ríkisstjórnin væri góð og allir gætu verið sammála öllu sem hún hefði gert. Öðruvísi mér áður brá, það er gott og blessað að menn séu farnir að líta þetta sanngjörnum augum. En hv. þingmaður hefur undanfarin ár, frá því að ríkisstjórnin tók við völdum, gagnrýnt mikið aukningu á útgjöldum hjá hinu opinbera. Þau hafa aukist um 116 milljarða í rammasettum fjárlögum, sem er um 16%. Mig langar að heyra hjá hv. þingmanni um þessi auknu útgjöld sem hafa farið sérstaklega til stórra málaflokka eins og í heilbrigðiskerfið, aukning í rekstur í heilbrigðiskerfinu hefur verið 34 milljarðar, sem þýðir 10–12%, og í innviðauppbyggingu, nýsköpun, rannsóknir og samgöngur og margt annað mætti telja og tína til, en bróðurparturinn hefur farið í heilbrigðiskerfið. Hvar sér hv. þingmaður að hægt sé að skera niður, ef vilji er til þess, eins og gagnrýnin hefur verið hjá Viðreisn undanfarin tvö ár? Hvar vilja menn skera niður? Í samgöngum, heilbrigðiskerfi, innviðum? Hvar vilja menn skera niður?

Hv. þingmaður talaði um að við værum bara að fjölga opinberum störfum og ekkert væri verið að gera fyrir einkageirann en allir þessir fjármunir sem hafa farið í aukningu ríkisútgjalda hafa auðvitað gagnast þeim sem eru í almennum atvinnurekstri. Þeir hafa notið þessara fjármuna líka í því að fara í ýmis verkefni sem hafa verið boðin út, bæði innan heilbrigðiskerfisins og í vegaframkvæmdum og annarri uppbyggingu. Það eru ekki bara opinberir starfsmenn sem ganga hér um með hamar og sög.