staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið er: Já. Ég tel langskynsamlegast að við skiptum um gjaldmiðil með því að taka upp evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu. Einfalda ástæðan fyrir því er sú að við erum að langstærstum hluta inni í Evrópusambandinu nú þegar. Þetta er okkar heimamarkaður, í gegnum EES-samninginn, þarna er þorri okkar utanríkisviðskipta í dag. Það myndi skipta íslensk útflutningsfyrirtæki verulega miklu máli að fá gjaldmiðil sem þau stunda þorra sinna viðskipta í. Það myndi skipta íslenskan almenning gríðarlega miklu máli líka um leið. Við erum að horfa á allt annað vaxtastig í evru en íslenskum krónum, jafnvel þó að vextir hafi lækkað hér á landi.
Við hljótum að spyrja okkur einfaldra spurninga eins og: Hvernig stendur á því að við erum tvisvar sinnum lengur að eignast þak yfir höfuðið en fólk í nágrannalöndum okkar? Hvernig stendur á því að fólk í því brennandi húsi sem Evrópusambandið er svo gjarnan samkvæmt lýsingum andstæðinga þess hefur það einfaldlega mun betra? Sérstaklega þegar komið er á miðjan aldur og fólk er orðið skuldlítið vegna langvarandi lágs vaxtastigs, og mun lægra en við eigum að venjast hér, og þar sem t.d. matvælaverð er miklum mun lægra en hér á landi. Matur og húsnæði, þessar tvær grunnþarfir og nauðþurftir allra fjölskyldna, allra einstaklinga, er fyrir íbúa Evrópusambandsins mun hagstæðara og kostnaðarminna en nokkuð það sem við höfum átt að venjast. Og þetta er einhver framtíðarsýn sem andstæðinga Evrópusambandsins hryllir við? Að almenningur hefði efni á því að eignast húsið sitt? Að það færi ekki svona hátt hlutfall í matarkostnað og gerir hér á landi? Íslensk fjölskylda borgar tugi þúsunda á mánuði hverjum í hærra matvælaverð en gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum, sem eru meira og minna, fyrir utan Noreg, í Evrópusambandinu. Já, ég tel þetta okkar langbesta kost og gæfi okkur mun betri stöðu en við búum við í dag.