150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[20:05]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég get tekið undir ýmislegt í máli hv. þingmanns og fyrst hann nefnir sérstaklega skattamálin er ég alveg sammála honum að því leyti að hér eru svo sannarlega peningar fyrir hendi en hér eru hins vegar teknar pólitískar ákvarðanir í þessum sal sem hygla þeim hópi sem mest á. Höfum það í huga að veiðileyfagjöld hafa lækkað um helming á starfstíma þessarar ríkisstjórnar, þau voru þrisvar sinnum hærri þegar þau voru hvað hæst. Ég geri mér fulla grein fyrir að þau sveiflast eftir afkomu o.s.frv. en það er hins vegar pólitísk ákvörðun sem hér er tekin að hafa veiðileyfagjöld það lág að þau ná ekki einu sinni að dekka þann kostnað sem almenningur verður fyrir vegna þjónustu hins opinbera gagnvart stórútgerðinni. Það er sömuleiðis pólitísk ákvörðun að hafa hér lægsta fjármagnstekjuskatt á öllum Norðurlöndunum. Það er pólitísk ákvörðun að setja í forgang að lækka bankaskatt, erfðafjárskatt og leggja fram sérstakt frumvarp um að hér beri að lækka stimpilgjöld af kaupum á stórum skipum. Við sjáum aftur og aftur hvaða hagsmunir verða hér ofan á þegar kemur að skattamálum, eins og hv. þingmaður nefnir.

Ég hef talsverðar áhyggjur af þessum ójöfnuði og ég vil setja hann í samhengi við fátækt. Ég tel þetta vera fullkomlega ómanneskjulegar staðreyndir sem hér blasa við: 6.000 íslensk börn fátæk, 70% öryrkja undir 300.000 kr. Á sama tíma berast fréttir um að einn útgerðarmaður gekk út úr sínu fyrirtæki með 22.000 milljónir. Á sama tíma var annar útgerðarmaður sem hagnaðist sjálfur prívat um meira en það sem öll þjóðin fær í veiðileyfagjöld. Á sama tíma setur þessi ríkisstjórn sérstaka aðhaldskröfu á skólana, (Forseti hringir.) hjúkrunarheimilin og spítalann. Þetta er ótrúleg pólitík, frú forseti.