staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.
Virðulegur forseti. Það er varla hægt að hefja umræðu um stöðuna í ársbyrjun án þess að fara nokkrum orðum um veðurofsann og snjóflóðin í liðinni viku. Sem betur fer er það í þetta skipti fyrst og fremst með þakklæti yfir því að áskorunum hafi verið mætt, m.a. hér í sal þegar ráðist var í gríðarlegar forvarnir með ofanflóðasjóði í kjölfar flóðanna hræðilegu 1995, þakklæti yfir þeirri þekkingu sem víða hefur orðið til og skiptir sköpum þegar á reynir, hvort sem er hjá sérfræðingum Veðurstofunnar, björgunarsveitunum eða öðrum viðbragðsaðilum, og þakklæti fyrir það að þegar á reynir stöndum við saman, ekki aðeins það samfélag sem fyrir áfallinu verður heldur við öll sem byggjum Ísland.
Á næstu misserum er eðlilegt að draga lærdóm af snjóflóðunum á Flateyri og í Súgandafirði, líkt og gert var fyrir aldarfjórðungi, nota nýjar upplýsingar til að endurmeta þær varnir sem reistar hafa verið og þær áætlanir sem fyrir liggja.
Frú forseti. Þeir þingmenn sem munu fara um þennan sal á næstu örfáu árum bera þá miklu ábyrgð að leysa stærstu áskorun mannkynsins, loftslagsvána. Hún er ekki einangrað viðfangsefni, heldur eitthvað sem gegnsýrir öll okkar störf og þarf að setja mark sitt á öll þau mál sem koma til kasta stjórnvalda og Alþingis. Góðu fréttirnar eru þær að þær breytingar sem við þurfum að gera til að takast á við loftslagsvandann bera með sér tækifæri til að endurhugsa öll þau kerfi sem samfélagið byggir á. Það er sama hvort við horfum á breytingar á samgöngukerfinu, skattkerfinu eða efnahagskerfinu í þágu loftslagsbreytinga, farsælasta lausnin felst alltaf í réttlátum umskiptum þannig að breytingar leiði til betra samfélags, heilbrigðari starfa, aukins jöfnuðar og réttlætis.
Hér leikur menntakerfið lykilhlutverk því að það þarf ekki aðeins að nesta börnin okkar með þekkingu á vísindalegum staðreyndum loftslagsbreytinga heldur láta þeim í té lýðræðisleg verkfæri til að móta samfélagið og beita áhrifum sínum gagnvart stórfyrirtækjum og stjórnmálafólki. Það sem við þurfum hins vegar að forðast er að falla í sömu gildru og Norðmenn virðast ætla að gera þessa dagana. Þar setja stjórnvöld metnaðarfull markmið í loftslagsmálum en fagna því á sama tíma að blása til stórsóknar í olíuleit undan ströndum Noregs.
Árið 2020 verður nefnilega ekki bæði haldið og sleppt í þessum efnum. Við mætum ekki áskorunum framtíðarinnar (Forseti hringir.) með því að endurtaka mistök fortíðarinnar.