150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[20:22]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og tek undir með honum þegar hann talar um loftslagsbreytingarnar og viðbrögð okkar við þeim, þau skref sem við þurfum að taka sem ábyrgir þegnar og sem ábyrg stjórnvöld þurfa að taka, að breytingarnar á stóru samfélagskerfunum okkar verði að eiga sér stað. Það þarf að gæta að því að þeir sem verst eru settir beri ekki kostnaðinn af aðgerðum stjórnvalda.

Hið sama á við um tæknibreytingarnar, við verðum að passa okkur á því núna þegar örar og miklar tæknibreytingar eru byrjaðar að sýna sig og verða enn róttækari, gerum við ráð fyrir að á næstu mánuðum og árum, að þær muni ekki bara leiða til þess að þeir ríku verði ríkari, þeir fátæku fátækari, að störf glatist og ný verði ekki búin til í staðinn. Að mörgu er að hyggja í þeim miklu samfélagsbreytingum sem fram undan eru. Það sem ég hef áhyggjur af er að þessi ríkisstjórn sem á að vera frá vinstri yfir til hægri, þó að ég verði að viðurkenna að mér finnst þau einhvern veginn öll orðin eins, að fyrir ríkisstjórn sem er svona samsett sé í rauninni alveg ómögulegt að taka á svona breytingum, að ríkisstjórn sem vill gera róttækar breytingar á samfélaginu og passa upp á jöfnuðinn um leið geti ekki verið svona samsett, hún verði að vera í rauninni einsleitari. Hvað vill hv. þingmaður segja um þetta?