150. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2020.

fé til rannsókna fjármálamisferlis.

[13:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er spurt um mál sem nokkuð var tekist á um undir lok síðasta árs í tengslum við afgreiðslu fjárlaga og í þingsal var því sjónarmiði hreyft að okkur bæri að tryggja þá þegar auknar fjárheimildir í fjárlögum á árinu 2020 til ákveðinna lykilstofnana. Þá höfðum við þegar gert ráðstafanir vegna skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra, eins og hann hét þá, m.a. með yfirfærslu ónýttra heimilda frá fyrri árum. En undir lok nóvembermánaðar barst erindi frá héraðssaksóknara, sem sagt skömmu fyrir 3. umr. fjárlaga, þar sem bent var á mikið álag á embættinu. Minn málflutningur á þessum tíma var að við hefðum úr ýmsum úrræðum að spila til að mæta álagi á viðkomandi stofnunum. Við höfum verið í góðu samráði um leiðir, sérstaklega í mínu ráðuneyti gagnvart skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra, eins og hann hét á þeim tíma, og gagnvart héraðssaksóknara hefur verið unnið að útfærslu sem tryggir embættinu 50 millj. kr. á yfirstandandi ári til að mæta fjölgun rannsakenda og síðan er gert ráð fyrir því að frá og með næsta ári hækki fjárhæðin enn frekar þannig að við sjáum á ársgrundvelli u.þ.b. 90 millj. kr. varanlega hækkun til embættisins frá því sem verið hefur.