150. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2020.

málefni innflytjenda.

457. mál
[14:18]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda. Þau lög tóku gildi 28. nóvember 2012 en markmið þeirra er að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna. Að þessu markmiði er unnið með því að samþætta hagsmuni innflytjenda allri stefnumótun, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera, stuðla að víðtæku samstarfi, efla fræðslu og miðlun upplýsinga og styðja við rannsóknir og þróunarverkefni er varða málefni innflytjenda.

Í frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á lögunum, annars vegar breytingar á hlutverki Fjölmenningarseturs er varða samræmda móttöku flóttafólks og hins vegar breytingar á nefndaskipan í innflytjendaráði. Á síðustu árum hafa orðið töluverðar breytingar á fjölda þeirra einstaklinga sem koma á eigin vegum til landsins og fá hér alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Árið 2019 fengu yfir 450 einstaklingar sem hingað komu á eigin vegum vernd á Íslandi en til samanburðar fengu um 230 einstaklingar vernd árið 2018. Til þessa hefur ekki verið til staðar formlegt móttökukerfi fyrir flóttafólk sem kemur til landsins á eigin vegum heldur eingöngu fyrir flóttafólk sem kemur hingað í boði stjórnvalda í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Skýringin á því er sú að þar til fyrir skemmstu var um að ræða tiltölulega fámennan hóp.

Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda hefur verið unnið að samræmdri móttöku flóttafólks, óháð því hvort það kemur á eigin vegum eða í boði stjórnvalda. Skýrsla nefndar um samræmda móttöku flóttafólks kom út í janúar 2019 en þar var lagt til samræmt móttökukerfi fyrir flóttafólk og einstaklinga sem fengið hafa dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Framlagning þessa frumvarps er liður í því.

Tillögum nefndarinnar má skipta í þrjár meginstoðir, í fyrsta lagi að félagsmálaráðuneytið geri samninga við móttökusveitarfélög um aukna aðstoð og þjónustu við flóttafólk sem felst m.a. í að skipa málstjóra sem hefur það hlutverk að tryggja samfellu í þjónustu sem byggir á einstaklingsmiðaðri áætlun, í öðru lagi að Vinnumálastofnun fái aukið hlutverk og annist samfélagsfræðslu og íslenskukennslu fyrir flóttafólk, veiti náms- og starfsráðgjöf auk aðstoðar við atvinnuleit og aðra virkni. Í þriðja lagi er að Fjölmenningarsetur fái aukið hlutverk sem felst í því að tengja saman flóttafólk og móttökusveitarfélög sem hafa gert samning við félagsmálaráðuneytið.

Með þessu frumvarpi er Fjölmenningarsetri falið víðtækara hlutverk vegna samræmdrar móttöku flóttafólks í samræmi við tillögur nefndar um samræmda móttöku flóttafólks. Fjölmenningarsetri er falið að veita sveitarfélögum faglega ráðgjöf varðandi móttöku flóttafólks og sinna fræðslu til fagaðila. Nýtt hlutverk stofnunarinnar er að halda utan um boð móttökusveitarfélaga um búsetu og þjónustu, byggða á þeim upplýsingum sem fyrir liggja og með tilliti til ákveðinna þátta, svo sem möguleika á námi, aðgangi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, atvinnutækifæra og samgangna. Fjölmenningarsetur þarf því að hafa aðgang að nauðsynlegum upplýsingum, annars vegar um móttökusveitarfélögin og hins vegar upplýsingum frá flóttafólkinu sjálfu og upplýsingum frá Útlendingastofnun eftir því sem við á. Mikilvægt er að kveðið sé skýrt á um heimild Fjölmenningarseturs til upplýsingaöflunar og miðlunar þannig að stofnunin geti sinnt þessu nýja hlutverki sínu. Dæmi um slíkar upplýsingar eru grunnupplýsingar um einstaklinga er varða menntun, fjölskylduhagi, fyrri atvinnuþátttöku og framtíðarvæntingar sem og heilsufarsupplýsingar.

Í frumvarpinu er einnig lögð til breyting á 4. gr. laganna er fjallar um innflytjendaráð. Með uppskiptingu velferðarráðuneytis í árslok 2018 í heilbrigðisráðuneyti annars vegar og félagsmálaráðuneyti hins vegar er ekki lengur fulltrúi frá ráðherra heilbrigðismála í ráðinu. Þar sem hlutverk ráðsins er að stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar er mikilvægt að fulltrúi ráðherra heilbrigðismála eigi sæti í ráðinu og því er lagt til að ráðherra heilbrigðismála tilnefni fulltrúa í ráðið.

Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust tvær umsagnir. Tekið var tillit til þeirra athugasemda sem fram komu við samráðið eftir því sem unnt var og breytingar gerðar á frumvarpinu þar að lútandi.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.