150. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2020.

málefni innflytjenda.

457. mál
[14:29]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi persónuverndarmálin, það er sjálfsagt að óska eftir umsögn Persónuverndar en ég tel jafnframt að það ætti að vera nóg að málið var unnið í samstarfi við persónuverndarfulltrúa Stjórnarráðsins en það er ekkert athugavert við það ef nefndin óskar eftir umsögn Persónuverndar.

Varðandi seinni liðinn þá bara hlakka ég til að hlýða á ræðu hv. þingmanns hér á eftir og ítreka það að Ísland er að taka á móti fleira kvótaflóttafólki. Við erum að auka það og í samanburði við til að mynda hin Norðurlöndin erum við á pari við þau eða stöndum betur eða með sambærilegum hætti ef tölurnar eru skoðaðar út frá höfðatölu. En ég hlakka til að hlýða á ræðu hv. þingmanns á eftir.