málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég kom nú ekki til að spyrja hv. þingmann spurninga heldur einmitt til að benda honum á hluti og gefa honum það frelsi sem hann vill til að svara því eins og hann vill eða ekki ef hann vill það ekki. Það er mér að meinalausu. Ég er bara hérna fyrir umræðuna, til að gefa það til hennar sem ég get, hvað sem það er. En hvort sem það er gagn eða ekki af EES-samstarfi þá stendur eftir að það eru u.þ.b. 500 milljónir manna sem mega flytja sig á milli landa og það hefur ekki valdið því flóði sem var spáð.
Mér finnst hv. þingmaður og fylgismenn hans mjög fljótir að fara að tala um galopin landamærin og eitthvað því um líkt. Það þarf ekkert galopin landamærin til að búa til atvinnuleyfi sem henta fyrir Albana, Makedóníumenn og Georgíumenn. Það þarf ekkert að galopna landamæri til þess. Það er jafnvel hægt að hafa einhver fjöldatakmörk, segjum svipaðan fjölda og við fáum af Pólverjum á hverju ári eða eitthvað slíkt. Yrði það eitthvert hræðilegt vandamál? Ég held ekki. Hvernig er það ekki vandamál ef við fáum hingað verkafólk, segjum frá Austur-Póllandi en það er allt í einu orðið vandamálið ef fólk í nákvæmlega sömu stöðu kemur frá Albaníu? Þetta er það sem stenst ekki, virðulegi forseti. Málflutningur hv. þingmanns snýr alltaf að því að reyna að draga úr fólki sem kemur hingað frekar en að hafa lagaumhverfið þannig að fólk frá Írak eða öðrum stöðum sem getur komið hér og byggt upp samfélag sitt þurfi ekki að notast við mansalshringi til að finna einhverja von í lífinu.