skaðabótalög.
Virðulegi forseti. Ég hef svo sem litlu við þetta að bæta, ég held að ég og hv. framsögumaður séum bara nokkuð sammála um að hér sé verkefni sem þurfi að vinna vel og dyggilega að. Þetta þarf að skoða vel og koma þessu máli í höfn. Það þarf að skoða nánar hvernig það verður gert og nefndin mun væntanlega gera það. Mér þykir mikið til koma þekkingar hv. þingmanns á þessum málum og hef margoft rætt það hér í þinginu. Ég er mjög þakklátur fyrir að þetta mál komi hér fram. Það eru margir sem eiga um sárt að binda og hafa farið illa út úr þeim viðskiptum sem hv. þingmaður hefur talað um.