Kristnisjóður o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið, það er ánægjulegt. Ég tek heils hugar undir það að ég vonast til þess að fleiri kirkjur verði reistar og þá sérstaklega þar sem þeirra er þörf, þar sem fólksfjölgun hefur orðið mikil. Það má ekki skilja orð mín á þann veg að ég hafi sagt að fleiri kirkjur myndu ekki rísa. Ég er alls ekki að benda á það. Ég er að benda á að í fjölmörgum minni sveitarfélögum verður ekki séð að fleiri nýjar kirkjur á vegum þjóðkirkjunnar rísi, einfaldlega vegna þess að fjárhagurinn er erfiður hjá mörgum þessum kirkjum og þær hafa þjónað hlutverki sínu ágætlega og gera enn. En vissulega er þörf í stórum sóknum, ég tek undir það, og þá er líka afar mikilvægt að staðið sé við lagaákvæði eins og þetta, að gefa söfnuðunum tækifæri til þess að byggja sínar kirkjur innan þess fjárhagsramma sem leyfir, og það skiptir verulegu máli, að kirkjan sleppi þá við að greiða lóða- og gatnagerðargjöld o.s.frv. Að því leyti til tel ég nauðsynlegt að þetta ákvæði sé áfram við lýði.
Að öðru leyti tek ég undir með hv. þingmanni, og ég er í liði með hv. þingmanni um það, og tala fyrir því að hér rísi fleiri kirkjur. Við erum kristin þjóð og höfum verið í rúmlega 1000 ár og eigum að sjálfsögðu ekki að vera feimin við að segja það og styðja við bakið á kristnum gildum og kirkjunni í þeim efnum.