Kristnisjóður o.fl.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég leyfi mér að rifja upp að við hv. þingmaður vorum báðir þátttakendur í umræðunni sem hann vísaði til. Í þeirri umræðu kom fram að ekki lægi fyrir nein úttekt eða greinargerð um verðmæti þeirra eigna sem þarna eru undir, og ég heyri hér einhvers konar samþykki frá hv. þingmanni (Gripið fram í.) — hann útskýrir hvað honum finnst um þetta. Ég lít þannig á að í þeirri umræðu hafi komið fram viðurkenning af hálfu ágætra þingmanna í flokki Pírata á því að fullnægjandi mat á þessu verðmæti lægi ekki fyrir. En ég hlýt að gera athugasemd við notkun hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar á orðinu óendanlega. Það er ekki óendanleiki sem er hér að verki, það er jafnvel þannig að greiðsluröð sem er ótímabundin er hægt að meta til endanlegrar fjárhæðar. Það eru nú bara til reikniformúlur fyrir því, t.d. í fræðum sem lúta að fjármálum. Ég þykist þess fullviss að ef hv. þingmaður myndi líta á þau fræði myndi hann átta sig á því um hvað verið er að tala hér. Notkun hans á óendanleikahugtakinu, sem er út af fyrir sig mjög áhugavert og heillandi viðfangsefni, fær ekki fyllilega staðist.