150. löggjafarþing — 51. fundur,  22. jan. 2020.

hlutafélög.

51. mál
[19:03]
Horfa

Flm. (Smári McCarthy) (P):

Frú forseti. Ég býst við að ég sé að byrja á röngum enda í þessu eins og öðru en ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög sem snýr að uppgjörsmynt arðgreiðslna. Fjármálafyrirtæki eru meðal þeirra fyrirtækja í samfélaginu sem teljast kerfislega mikilvæg í þeim skilningi að sé pottur brotinn í rekstri þeirra eða verði þau fyrir rekstrarlegum áföllum er það líklegt til að hafa umtalsverð neikvæð og truflandi áhrif út fyrir félagið sjálft, jafnvel fyrir samfélagið og hagkerfið allt. Fyrir vikið er gerður áskilnaður um sérstakt starfsleyfi og rekstrarform fjármálafyrirtækja, auknar kröfur um styrkan eiginfjárgrunn, skorður eru settar við meðferð eignarhluta í slíkum fyrirtækjum og þeim er gert að sæta auknu eftirliti af hálfu opinberra aðila. Þau sæta líka ríkari upplýsingaskyldu og þannig mætti áfram telja.

Vegna mikilvægis fjármálafyrirtækja í samfélaginu og þess hve viðkvæmur rekstur þessara félaga er, til að mynda gagnvart aðkomu eða mögulegri íhlutun eigenda í rekstri þeirra, er æskilegt að eignarhald fjármálafyrirtækja sé sem dreifðast. Það leiðir af megineinkennum hlutafélagaformsins að skorður eru settar við útgreiðslu fjármuna úr slíkum félögum til eigenda þeirra, hluthafanna. Það fyrirkomulag á sér stoð í tveimur meginreglum félagaréttarins, annars vegar sem snýr að takmarka ábyrgð, þ.e. að eignir félagsins með takmarkaðri ábyrgð eru fráteknar fyrir kröfuhafa félagsins, og hins vegar eru skorður að sama skapi settar við úttektum eigenda félagsins á fjármunum þess. Útgreiðslur úr slíku félagi skulu eiga sér stoð í lögum og þær skulu því aðeins fara fram ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt, svo sem um að eiginfjárstaða félagsins sé áfram tryggð, óháð útgreiðslum, og að hagsmunum kröfuhafa félagsins sé ekki stefnt í hættu þrátt fyrir að fjármunir séu greiddir til eigenda.

Í tilviki fjármálafyrirtækja sem hafa leyfi til móttöku innlána og annarra endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi eru kröfuhafar ekki aðeins þeir sem hafa veitt þessum fyrirtækjum lán með hefðbundnum hætti eða keypt skuldabréf í þeim eða skammtímaskjöl heldur einnig innlánseigendur. Eigendur innlána í fjármálafyrirtækjum eru sjaldnast í stöðu til að gæta hagsmuna sinna með samningaviðræðum við fjármálafyrirtæki, m.a. vegna þess mismunar sem er á stöðu og stærð innlánseigenda annars vegar og fjármálafyrirtækisins sem þeir hafa falið vörslu innlána sinna hins vegar.

Því er óhætt að fullyrða að langalgengast sé að útgreiðslur til hluthafa í hlutafélögum séu í reiðufé. Í XII. kafla laga um hlutafélög má sjá að augljóslega eru þau ákvæði skrifuð með það í huga að það sé a.m.k. meginregla að arðgreiðslur séu í reiðufé. Arðgreiðslur í öðru formi en með reiðufé, sérstaklega frá fjármálafyrirtækjum, fela í sér aukna áhættu fyrir félagið sjálft og kröfuhafa þess, m.a. innlánseigendur, minni hluta hluthafa og aðra haghafa, svo sem skattyfirvöld, því að hætta er á því að eignir séu teknar út úr hlutafélagi og færðar eigendum þess á öðru verði en raunvirði.

Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að bókfært verð eignar félags er sjaldnast það sama og raunvirði eignarinnar. Ekki er heldur tryggt að innra eða ytra verðmat sé áreiðanleg staðfesting á raunvirði eignar þar sem slíkt mat byggist á forsendum sem eru gefnar einhliða við matið. Þær ályktanir sem eru dregnar af verðmati eru háðar forsendunum sem eru gefnar. Þær kunna að reynast ónákvæmar eða jafnvel rangar.

Þá þarf sérstaklega að hafa í huga að kerfisleg áhætta getur myndast ef hluthafar fjármálafyrirtækja eru að stærstum hluta erlendir vegna þess að til að draga úr eigin gjaldeyrisáhættu má ætla að þeir geri kröfur um að arður sé greiddur út í erlendri mynt sem er önnur en uppgjörsmynt fjármálafyrirtækisins. Þá myndast þrýstingur á stjórnendur fjármálafyrirtækis að lána í áhættusamari verkefni í erlendri mynt og jafnvel til óvarinna einstaklinga og fyrirtækja.

Með þessu öllu eru að verða til ákveðin vandamál sem er býsna auðvelt að laga. Í ákveðnum tilfellum gætu eigendur farið að taka eignir út úr fjármálafyrirtækjum, sem eru hlutabréf eða fasteignir eða annað, og gætu líka reynt að taka út arð í erlendri mynt. Til að fyrirbyggja þann annmarka sem verður þá til má einfaldlega mæla fyrir um það í lögum með skýrum og afdráttarlausum hætti að þegar fjármálafyrirtæki eigi í hlut skuli þau alltaf greiða út arð í reiðufé í uppgjörsmynt félagsins sem á við hverju sinni en ekki með öðrum hætti.

Þetta kemur náttúrlega til vegna þess að það er ákveðin áhætta þegar við erum með tiltölulega fá og tiltölulega stór fjármálafyrirtæki á íslenskum markaði sem eru með töluvert miklar eignir í formi skuldabréfa, hlutabréfa og annarra eigna, en eru kannski ekki með svo mikla eiginfjárstöðu umfram það sem er lögboðið. Hérna er markmiðið að takmarka þá áhættu sem stafar af núgildandi lögum, minnka kerfisáhættu, draga úr áhættu fyrir hluthafa, þar með talið ríkið í þeim tilfellum þar sem ríkið á stóran hlut í bönkum, jafnvel þótt það geti verið minni hlutir í einhverjum tilfellum, og auðvitað fyrir skattyfirvöld.

Þetta er hófleg tillaga til að reyna að bæta úr þessari áhættu. Það kann að vera að þetta séu óþarfaáhyggjur af hálfu flutningsmanna sem eru ásamt mér, Smára McCarthy, hv. þingmenn Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, en þetta eru samt þannig áhyggjur að við höfum áður lagt þetta frumvarp fram á 148. og 149. þingi. Á hvorugu þeirra náði málið fram að ganga og því endurflytjum við það óbreytt. Ég vona innilega að þetta séu óþarfaáhyggjur en þar sem þetta er það lítil, hófleg og einföld breyting á lögum sem ætti ekki undir neinum kringumstæðum að hafa óeðlilega neikvæð áhrif á starfsemi fjármálafyrirtækja, nema síður sé, og gerir ekkert annað en að styrkja örlítið okkar kerfislegu hagsmuni held ég að það sé full ástæða til að málið gangi til 2. umr. og efnahags- og viðskiptanefndar.