150. löggjafarþing — 52. fundur,  23. jan. 2020.

stofnun hálendisþjóðgarðs og skipulagsvald sveitarfélaga.

[10:45]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Stofnun hálendisþjóðgarðs er eitt af forgangsmálum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Nú hafa frumvarpsdrög að lögum um þjóðgarðinn legið í samráðsgátt stjórnvalda, umsagnarfrestur er liðinn og bárust tæplega 70 umsagnir. Það má gera ráð fyrir því að hæstv. ráðherra sé ásamt sínu fólki að skoða þær með tilliti til mögulegra breytinga og í kjölfarið hefur ráðherrann verið á fundum víðs vegar um landið að kynna drögin.

Gagnrýnisraddir hafa verið nokkuð háværar og merkilegt nokk fyrst og fremst úr röðum ríkisstjórnarflokkanna, herbúðum þeirra. Gagnrýnin snýst m.a. að því að þjóðgarðurinn muni skerða verulega skipulagsvald og forræði sveitarfélaga innan landamæra sinna og að svæðisráð, sem m.a. unnu stjórnunar- og verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn, verði æðra sett sveitarstjórnum og skerði völd þeirra í mikilvægum málum. Á móti heyrast vissulega raddir sem segja að sveitarstjórnir fámennra sveitarfélaga muni ráða í öllu þar sem þær skipa meiri hluta stjórnar þjóðgarðsins og ef einhverjir ættu að vera ósáttir við stjórnsýsluna þá eru það íbúar í þéttbýli sem hafa ekkert vald yfir landi sem á að heita í sameiginlegri eign þjóðarinnar. En það er ekki þetta sem er að trufla ríkisstjórnarflokkanna.

Spurning mín er sú hvort hæstv. umhverfisráðherra telji það ganga upp ef kröfur samstarfsflokka Vinstri grænna í ríkisstjórn um fullt og óskorað ákvörðunar- og skipulagsvald þeirra sveitarfélaga sem hafa umgengnis- og umráðarétt á svæðinu verða að veruleika. Mun sú hugmynd sem umhverfisráðherra hefur um hálendisþjóðgarðinn, sú hugmynd sem hann hefur unnið ötullega að, ganga upp? Verður hugmynd um hálendisþjóðgarð sem sett er fram án nokkurs fyrirvara í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að veruleika ef hvert sveitarfélag sem á aðkomu að þeim þjóðlendum sem lenda innan marka þjóðgarðsins hefur áfram fullt skipulags- og ákvörðunarvald?