150. löggjafarþing — 52. fundur,  23. jan. 2020.

stofnun hálendisþjóðgarðs og skipulagsvald sveitarfélaga.

[10:49]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og ætla að túlka það sem svo að við spurningu minni sé það nei. Það er svona sem þetta þarf að vera ef hugmyndin á að ná fram.

Mig langar til að víkja að öðru. Í vikunni kynnti hæstv. forsætisráðherra endurskoðaða þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fram á vor og þar kemur fram að stefnan er að leggja fyrir þingið til afgreiðslu frumvarp til laga um hálendisþjóðgarð, frumvarp um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða og þingsályktunartillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun, allt fyrir lok febrúar. Það er ljóst að þessi augljósi ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna um hálendisþjóðgarð ríkisstjórnarinnar liggur ekki bara í forræði skipulagsmála heldur kannski ekki síst, þótt það sé minna orðað akkúrat núna, í málum sem tengjast orkunýtingu og virkjunum innan þjóðgarðanna. Með frumvarpinu um hálendisþjóðgarð verða t.d., eins og komið hefur fram og er ekki óeðlilegt, settar strangari kröfur um gerð nýrra virkjana. Í dag er 23. janúar og störukeppni ríkisstjórnarflokkanna er að hefjast.

Spurning mín til hæstv. umhverfisráðherra er einfaldlega þessi: (Forseti hringir.) Eru tillögurnar sem koma fram í endurskoðaðri þingmálaskrá um framlagningu þessara mála innan næsta mánaðar raunhæfar? (Forseti hringir.) Hvert er plan B hjá umhverfisráðherra?