stefna stjórnvalda í matvælaframleiðslu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þá umræðu sem hér er að hefjast og ætla að svara þeim spurningum sem lagðar eru fram. Þetta er að vísu dálítið yfirgripsmikið efni þannig að ég veit ekki hversu vel og ítarlega ég get farið yfir hverja og eina spurningu. Það verður bara að ráðast og ég bið hv. þingmann að virða það við mig.
Varðandi fyrstu spurninguna, um áherslur ráðherra í matvælaframleiðslu innan lands með tilliti til matvælaöryggis og loftslagsmála, vil ég fyrst tiltaka að í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur verið lögð gríðarleg áhersla á matvælaöryggi í innlendri matvælaframleiðslu og sömuleiðis varðandi innflutning í ljósi þeirra breytinga sem við urðum að gera vegna dóma sem fallið höfðu á íslensk stjórnvöld. Í því efni erum við með Matvælastofnun, Matís og sóttvarnalækni sem lykilaðila. Þegar ég nefni þessi atriði kemur eðlilega upp í hugann sú aðgerðaáætlun sem þingið samþykkti í tengslum við innflutning á ófrystu kjöti, sem er mál málanna í þeirri vinnu sem á sér stað núna innan míns ráðuneytis í þessum efnum.
Fyrst vil ég tiltaka matvælastefnu fyrir Ísland sem unnið er að og lítur vonandi dagsins ljós nú á vormánuðum. Við höfum sett á fót áhættumatsnefnd sem hefur það hlutverk að hafa umsjón með og veita vísindalegt áhættumat á sviði matvæla, fóðurs og áburðar. Þessi nefnd var lögskipuð en henni hafði ekki verið sinnt í tíu ár. Við höfum innleitt bann við dreifingu á alifuglakjöti vegna kampýlóbaktersýkingar og við höfum fengið viðbótartryggingar vegna innflutnings á kjöti. Það er hafin vinna til að verjast sýklalyfjaónæmi og þar er samstarf við heilbrigðisyfirvöld. Það er sömuleiðis hafin vinna við betri merkingar á matvælum og jafnframt höfum við sett á laggirnar og styrkt eftirlit í tengslum við þær breytingar sem fylgdu auknum heimildum til innflutnings á ófrystu kjöti.
Varðandi loftslagsmálin vil ég nefna að við vinnum þar á grunni aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Þar er loftslagsráð sömuleiðis og kominn er upp samráðsvettvangur milli atvinnulífsins og stjórnvalda. Ég vil nefna sérstaklega samninga við bændur um nautgripasamning sem setur markmið um kolefnishlutlausa starfsemi þeirra fyrir árið 2040. Sömuleiðis hvað varðar sauðfjárræktina og samninga við sauðfjárbændur, þar er komið í gang samstarfsverkefni um loftslagsvænan landbúnað þannig að það er af ýmsu að taka í þessum efnum.
Ég vil nefna það sem hv. þingmaður kom að sem laut að hvernig hægt sé að lækka aðgangshindranir á sölu beint til neytenda frá matvælafyrirtækjum. Það er mjög mikilvægt að vinna í því. Við höfum verið að vinna á vegum míns ráðuneytis að því að reyna að einfalda regluverk sem snýr að þessum þáttum. Við höfum verið að leita leiða til að auka verðmætasköpun hjá bændum og þar, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, hefur töluvert mikið verið í umræðunni það sem kallað er örsláturhús eða heimaslátrun. Þar höfum við leitað samstarfs við Noreg, Þýskaland og Finnland, en sú útfærsla sem verið var að skoða gekk ekki upp. Hún rúmast hvorki innan þeirrar löggjafar sem hér er í gildi né alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland hefur gert. En hins vegar boðaði ég til mín helstu fulltrúa þessara sjónarmiða í byrjun desember síðastliðins. Helstu hagsmunaaðilar komu í ráðuneytið þar sem við ræddum hvernig við gætum mögulega brotist út úr þessu. Í framhaldi þess fundar komum við okkur saman um að ráðast í sameiginlegt tilraunaverkefni á þessu sviði og ég bind vonir við að það verði farsælt.
Spurt er hvernig innleiðing innkaupastefnunnar gangi. Hún var samþykkt 17. maí á síðastliðnu ári og Ríkiskaup hafa hana með höndum og hafa þegar verið haldnir fjórir fræðslufundir með helstu hagsmunaaðilum. Gert er ráð fyrir því að Ríkiskaup hafi þetta verkefni áfram með höndum.
Ylræktin. Þar vísa ég einfaldlega til þess að það standa yfir viðræður milli ríkisins og garðyrkjubænda um endurskoðun samnings um starfsskilyrði þeirra. Þar liggja fyrir áherslur úr samstarfsnefndinni sem undirbjó samningaviðræðurnar og ég vænti þess að tekið verði á þeim efnum sem hv. þingmaður ber fyrir brjósti.