150. löggjafarþing — 53. fundur,  28. jan. 2020.

viðbúnaður vegna kórónaveirunnar.

[13:59]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka fyrir svörin og vil bæta aðeins við. Ef þessi tiltekna veira nær ekki heimsútbreiðslu, eins og við öll vonum, er engu að síður einungis tímaspursmál hvenær alvarlegur flensufaraldur í ætt við spænsku veikina, sem lagði allt að 50 milljónir manns að velli, muni ganga aftur yfir heimsbyggðina. Þetta hafa sérfræðingar svo sem lengi sagt. Það mun gerast í heimi þar sem samgöngur eru miklu hraðari og meiri en árið 1918.

Mig langar að bæta við einni spurningu til hæstv. ráðherra um mjög praktískan vinkil á málinu. Í ljósi þess að við erum núna að fara að endurskoða fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar velti ég fyrir mér hvort hæstv. ráðherra sé tilbúin til að beita sér fyrir því að breytingar verði gerðar á þeirri áætlun með það í huga að heilbrigðisstofnanir á Íslandi séu betur í stakk búnar til að mæta, að því er virðist, óhjákvæmilegri ógn af þessari stærðargráðu.