viðbúnaður vegna kórónaveirunnar.
Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun er auðvitað breytingum háð og þess vegna uppfærum við hana ár hvert og skoðum þær breytingar sem eiga sér stað milli ára. Til þess eru þær gerðar. Við þurfum að horfa til þess hvernig þjónustu við veitum og hvar helst sé pottur brotinn. Við horfum nú á endurtekin áföll eins og hv. þingmaður nefnir varðandi veðurfar og annað slíkt. Það kann að vera að við þurfum að horfa betur á það hversu vel stofnanirnar eru í stakk búnar til að veita bráðaviðbragð og hversu vel heilsugæslurnar eru settar. Allt þetta er verið að skoða.
Ég vil nota tækifærið í ræðustól Alþingis og segja að leiðbeiningar til almennings um viðbrögð hafa verið settar á síðu Stjórnarráðsins og eru sendar til fjölmiðla núna í dag vegna þess að sóttvarnalæknir vill leggja fram tiltekna hvatningu, bæði fyrir einstaklinga á ferðalögum erlendis en ekki síður fyrir þá sem hér eru, til að draga úr líkum á því að þegar og ef þessi sjúkdómur kemur hingað breiðist hann hratt út og mikið.