150. löggjafarþing — 53. fundur,  28. jan. 2020.

kjötrækt.

78. mál
[20:03]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Virðulegi forseti. Þetta er mjög einföld en gríðarlega stór tillaga þegar allt kemur til alls út frá umhverfislegu sjónarmiði og hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að kanna stöðu kjötræktar og skipuleggja aðgerðaáætlun um innleiðingu tækni fyrir íslenskan landbúnað með það að markmiði að flýta fyrir því að kjötrækt verði samkeppnishæf við afurðir af hefðbundinni veiði eða ræktun dýra til manneldis.

Samantekt um stöðu kjötræktar liggi fyrir eigi síðar en 1. mars 2020“ — það verður væntanlega einhver seinkun á því en nefndin tekur á því — „og ráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda hvað varðar kjötrækt eigi síðar en 1. nóvember 2020.“

Ég myndi giska á að það myndi kannski frestast til fjármálaáætlunar á næsta ári miðað við núverandi stöðu, en því fyrr því betra, því að þetta er gríðarlega umfangsmikið mál í umhverfis- og loftslagslegu tilliti. Eins og kemur fram í greinargerðinni þá sendir kjötrækt 78–96% minna af gróðurhúsalofttegundum frá sér en hefðbundin dýrarækt og notar 99% minna landrými og 82–96% minna af vatni. Einungis fuglarækt notar minni orku, enda eru fuglarnir yfirleitt hafðir í einhverjum risastórum skemmum með engu ljósi. Annars þarf kjötrækt 7–45% minni orku en hefðbundin dýrarækt eftir tegundum.

Annað sem myndi batna gríðarlega mikið með því að fara yfir í kjötrækt í staðinn fyrir verksmiðjuframleiðslu á dýrum væri sýklalyfjaónæmi sem oft á uppsprettu sína í notkun á sýklalyfjum í landbúnaði. Það væri gríðarlega mikilvægt á heimsvísu ef við næðum því markmiði að útrýma einfaldlega verksmiðjuframleiðslu á dýrum til matar.

Þessi tillaga hefur verið flutt áður á 146., 147., 148. og 149. löggjafarþingi og ég vísa til flutningsræðu í þau skipti sem málið náði það langt, til að lengja ekki umræðuna um of.