150. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2020.

stofnun embættis tæknistjóra ríkisins.

15. mál
[16:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka nefndinni fyrir ágætt starf við að skoða þessa tillögu. Ég tek eftir því að tillagan heitir tillaga til þingsályktunar um stofnun embættis tæknistjóra ríkisins. Þegar upp er staðið er þá tillögu ekki lengur að finna í þessari þingsályktunartillögu og það skiptir máli varðandi það að ég geti stutt þetta mál, enda segir það í sjálfu sér, eins og það stendur breytt eftir meðhöndlun nefndarinnar, ekki neitt annað en það sem ríkisstjórnin er að gera, að við höfum fyrir löngu ákveðið að gera stafrænar leiðir að meginsamskiptaleiðum við hið opinbera. Þessa dagana erum við að skipa í embætti stafræns leiðtoga hjá fjármálaráðuneytinu sem fer fyrir og ber ábyrgð á stafrænu innleiðingunni. Við munum sjá mjög miklar breytingar strax á þessu ári í stafrænum lausnum varðandi opinbera þjónustu. (Forseti hringir.) Að þessu sögðu er svo sem hægt að samþykkja þennan texta sem er í raun og veru ekki annað en að hvetja okkur áfram á sömu braut.