varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Ég vil kannski halda mig við hlutverk framkvæmdarvaldsins hér og vil aðeins fara yfir hvað fjallað var um í síðustu úttekt GRECO. Þar var fjallað sérstaklega um samskipti við hagsmunaverði. Þar var fjallað sérstaklega um aukastörfin sem sömuleiðis er tekið á hér. Þar var fjallað um gjafir og hlunnindi sem þessar reglur eru settar um. Þar var fjallað um starfsval að loknu starfi sem ráðherra eða ráðuneytisstjóri, eða hvað það er. Þar var sömuleiðis fjallað um hagsmunaskráninguna og síðan hvernig fara eigi með eftirfylgni. Við teljum okkur því vera að mæta öllum þessum ábendingum. Hvað varðar þingið ítreka ég að ég tel eðlilegt að það sé rætt á vettvangi forsætisnefndar þingsins. Það liggur líka fyrir að aðeins aðrar kröfur eru gerðar til þingmanna en ráðherra. Mér finnst það eðlilegt af því að ráðherrar eru samhliða því að vera þingmenn oftast embættismenn og um það eiga að gilda aðeins önnur sjónarmið.