varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa athugasemd. Þarna erum við aftur að reyna að finna einhvers konar meðalveg og teljum að aðstoðarmenn ráðherra lúti aðeins öðrum lögmálum en annars vegar embættismenn og hins vegar ráðherrar. Þetta eru oft mjög tímabundin störf ef skoðuð er sagan, þ.e. fólk fer oft mjög skyndilega í þessi störf og þeim lýkur líka oft mjög skyndilega. Starfstíminn er oft töluvert styttri en til að mynda í tilfelli embættismanna og ráðherra. Það var niðurstaða okkar, þó að hún sé ekkert endilega einhlít, að leggja þetta til með þessum hætti, að annars vegar séu það embættismenn og hins vegar ráðherrar sem sannarlega má telja að hafi töluvert starfsöryggi og séu í mjög miklum valdastöðum og að til þeirra ætti að gera ríkari kröfur en aðstoðarmanna. Mér finnst eðlilegt að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalli um þetta atriði. Þarna vógust á þessi sjónarmið en það var á endanum niðurstaða okkar að aðstoðarmenn lytu aðeins öðrum lögmálum en þeir sem sannanlega eru æðstu handhafar framkvæmdarvalds, því að það teljum við aðstoðarmenn ekki vera.