afnám vasapeningafyrirkomulags.
Virðulegur forseti. Hér er mikið framfaramál á ferðinni, réttlætismál og mannréttindamál. Flest þekkjum við dæmi sem hér eiga við. Fólk vill sannarlega geta búið sem lengst heima hjá sér og séð um sig sjálft og þegar það breytist að því sé áfram sýnd virðing og að það njóti allra sinna réttinda, sjálfræðis og fjárræðis. Það skýtur skökku við nú á tímum að við skulum búa við það fyrirkomulag að lífeyrisþegar geti fengið á sig skerðingar á þeim greiðslum sem þeir hafa unnið sér inn í gegnum sitt líf með því að þurfa að fara á stofnun eða hjúkrunarheimili til að hafa þar aðhlynningu. Margir búa svo sem ekki við mikinn lífeyri, hvað þá eftir þær skerðingar sem margir þurfa líka að upplifa á þeim. Síðan bætist það við að þurfa að vera meðhöndluð með þessum hætti með takmörkuðum dagpeningum eins og unglingar væru.
Ég tek sem sagt undir markmið tillögunnar sem er að aldraðir fái notið lögbundins fjárræðis og sjálfræðis. Ég vona að þingið muni taka vel á því og vinna því framgang því að mér þykir þetta sjálfsagt og eðlilegt réttlætismál. Það er mikilvægt að bæta hér úr og tryggja mannréttindi allra hvað þetta varðar.